Hér verða birt úrslit innlendra móta og nokkurra erlendra móta sem við tökum þátt í.
Úrslit ÍM 2012
24. mars, 2012 (16:56), höfundur: Bjarni
Hér eru öll úrslit Íslandsmeistaramóts seniora 2012.
Myndir og umfjöllin síðar.
Úrslit ÍM U17 og U20
18. mars, 2012 (17:25), höfundur: Bjarni

Íslandsmót yngri en tuttugu ára var haldið í JR um helgina. Keppendur voru 49 frá öllum félögum og skiptust nokkuð jafnt í báða aldursflokka. Að lokinni einstaklingskeppninni var keppt í sveitakeppni og að þessu sinni voru eingöngu karlasveitir skráðar til leiks. Úrslit og myndir í lesa meira.Keppt er í fimm manna sveitum og þarf því lágmark þrjá keppendur til að manna sveit. Það bar mest til tíðinda að sveit KA fékk samþykki mótherja sinna til að nota konu í karlasveit sinni til að hlaupa í skarðið í léttasta þyngdarflokknum og gerði það gæfumuninn því sveit KA stóð uppi sem sigurvegarai í U20 aldursflokknum en sveit JR sigraði í U17.
Úrslit í einstaklingskeppni U17 og U20 2012
Riðill sveitakeppni 2012 U17
Úrslit sveitakeppni 2012 U17
Riðill sveitakeppni 2012 U20
Úrslit sveitakeppni 2012 U20
JR bikarmeistarar
10. mars, 2012 (18:41), höfundur: Bjarni
JR varð bikarmeistarai í aldursflokknum U15 ára í dag og er það i þriðja sinn sem JR vinnur þann titil en fyrsta keppnin fór fram árið 2009. Sveitina skipuðu þeir Sigurður Teitur Tannason, Jón Hákon Þórsson, Árni Pétur Lund, Viktor Ingi Pálsson, Sævar Bjarnason, Ásþór Loki Rúnarsson, Stefán Hóm Guðnason og Darri Freyr Hinriksson. Staðan í Bikarkeppni karla að lokinni fyrri umferðinni er þannig að sveit JR er í fyrsta sæti með tvo vinninga, níu einstaklings vinninga og 85 tæknistig. Í öðru sæti er sveit Ármanns með jafn marga vinninga en færri einstaklinsvinninga og tæknistig og sameiginleg sveit KA/Selfoss er í því þriðja. Í “Lesa meira” eru myndir frá keppninni, æfingunni og öll úrslit. Seinni hluti Bikarkeppninnar verður haldin í haust og þá má gera ráð fyrir að allir okkar sterkustu menn verði orðnir heilir en talsvert er um meiðsli og veikindi þessa dagana og á það við um allflesta klúbbana. Þormóður Jónsson, Ægir Valsson, Hermann Unnarsson, Ingi Þór Kristjánsson og Kristján Jónsson voru fjarverandi af fyrrgreindum ástæðum en það kom ekki að sök því sveit JR vel mönnuð. Sveitina skipuðu þeir Janusz Komendera, Roman Rumba, Viktor Bjarnason, Jón Þór Þórarinsson, Steinn Eldjárn Sigurðarson og hinn gamalreyndi og öflugi júdómaður Eiríkur Kristinsson sem fór fyrir henni. Að lokninni keppni var tækifærið notað og haldin sameiginleg klúbbaæfing áður en menn heldu til síns heima á ný.
Úrslit U15 Viðureignir U15
Staðan Seniorar Viðureignir Seniorar
Úrslit Góumótsins
18. febrúar, 2012 (20:38), höfundur: Bjarni
Það var frábær þátttaka á Góu móti JR i dag og sjaldan ef nokkurn tíman hefur jafn fjölmennur og flottur hópur svona ungra júdóiðkenda (6-10 ára) verið samankominn til að reyna sig við félaga sína úr öðrum klúbbum. Keppendurnir sem voru um sextíu og komu frá átta klúbbum sýndu oft á tíðum glæsilegt júdó með flottri tækni og snerpu. Þeir voru í alla staði til fyrirmyndar bæði utan vallar sem innan. Þessi mikla þátttaka sýndi að það er mikið og vel unnið í barnastarfinu hjá öllum klúbbum landsins og ljóst að með svona efnivið eins og sást til í dag og með sama áframhaldi er framtíðin björt í júdóíþróttinni á Íslandi.
Hér eru úrslitin: Úrslit í 6-8 ára og Úrslit í 9-10 ára Hér neðar eru myndir frá mótinu.
Úrslit Kyu mótsins
12. febrúar, 2012 (14:04), höfundur: Bjarni
Fyrra KYU mót ársins var haldið um helgina hjá Júdódeild ÍR og eru úrslitin hér.
Úrslit Afmælismótsins
28. janúar, 2012 (18:31), höfundur: Bjarni
Hér eru úrslit Afmælismóts JSÍ 2012 í senioraflokkum.
Úrslit RIG 2012
21. janúar, 2012 (16:59), höfundur: Bjarni





















































































































