Sumarmót JR 2026 – úrslit

Sumarmót JR 2026 var haldið laugardaginn 16. maí og voru þátttakendur þrjátíu og tveir frá fimm klúbbum. Keppnin hófst kl 13 og lauk um kl. 14:30. Þetta mót er hugsað sem æfingamót fyrir aldurshópinn 7 til 10 ára. Keppendum er raðað saman eftir aldri og þyngd eins og venjulega en stundum þarf að blanda saman aldursflokkum og kyni en alltaf reynt að hafa keppendur í sem næst í þyngd og allir fá þátttökuverðlaun. Starfsmenn voru þeir Jóhann Másson og Gunnar Tryggvason sem sáu um mótsstjórn og klukku, dómarar voru þeir Ari Sigfússon og Viktor Kristmundsson og Zaza Simonishvili og Jemerllein Machado héldu utan um keppendur JR. Hér er video klippa og úrslitin.