Góumót JR 2024 – Úrslit

Góumót JR var haldið laugardagin 24. febrúar en það er æfingamót fyrir yngstu iðkendurna frá 5-6 ára aldri sem er innanfélagsmót og svo 7-10 ára sem er mót opið öllum klúbbum og fá allir keppendur þátttökuverðlaun. Dagurinn hófst kl. 10 á æfingu barna 5-6 ára þar sem farið var yfir helstu keppnisreglur og svo var haldið lítið mót þar sem þau fengu að reyna sig og stóðu þau sig afar vel og fengu sín þátttökuverðlaun og ávaxtadrykki í setustofunni að loknu móti.

Keppnin barna 7-10 ára hófst kl. 13 og lauk henni um kl. 16. Keppendur voru fimmtíu og tveir frá eftirfarandi fimm klúbbum, Judofélag Reykjavíkur(JR), Judodeild Ármanns (JDÁ), Judofélagi Reykjanesbæjar (JRB), Judodeild Grindavíkur (UMFG) og Judodeild Selfoss (UMFS). Flestir þátttakendanna voru að taka þátt í sínu fyrsta móti og stóðu þau sig alveg frábærlega og höfðu þjálfarar þeirra í nógu að snúast við að undirbúa þau og leiðbeina. Börnunum er raðað saman eftir aldri og þyngd eins og venja er og keppa stúlkur og drengir stundum saman í flokkum ef þannig stendur á sem og að stundum þarf að sameina þyngdarflokka svo allir fái mótherja.

Dómgæslan var á höndum nokkura okkar bestu judomanna JR sem leystu það verk vel af hendi en það voru þau Aðalsteinn Björnsson, Jónas Guðmundsson, Mikael Ísaksson, Skarphéðinn Hjaltason og Weronika Komendera sem sáu um það. Daníela Daníelsdóttir og Guðmundur Björn Jónasson héldu utan um JR keppendurna og svo voru það Ari Sigfússon og Kolmar Jónsson sem sáu um góða og örugga mótsstjórn.

Mótið var vel sótt bæði af keppendum sem og foreldrum og eða öðrum skyldmennum sem að fylgdust með keppninni og var þetta frábær skemmtun og ótrúlega flott judo sem þessir ungu iðkendur sýndu. Flestir keppendurnir komu frá Selfossi að þessu sinni og unnu þeir flest gullverðlaunin en þeir hafa oftast verið fjölmennastir frá 2012 eða sex sinnum og á Einar Otto þjálfari Selfoss heiður skilið fyrir hve vel hann heldur á sínum iðkendum. Flest gullverðlaun hafa þó JR ingar unnið en Selfoss kemur þar næst og svo Grindavík en hér er hægt að sjá þátttöku og skiptingu verðlauna frá 2012 til dagsins í dag og hér eru eru svo úrslitin, myndir frá mótinu og stutt videoklippa.