Fjórtán gull á Vormóti JSÍ yngri 2026

Vormót JSÍ í yngri aldursflokkum (U13, U15, U18, U21 árs) fór fram laugardaginn 18. apríl og var það haldið hjá Judodeild ÍR. Upphaflega átti það að fara fram 21. mars á Akureyri en það féll niður vegna ófærðar og urðu allmargir vonsviknir að svo skildi fara því búið var að ganga frá gistingu og rútu fyrir fjörtíu manna hóp frá JR sem hlakkaði til ferðarinnar. En svona er þetta stundum við veðrið verður ekki ráðið. Önnur dagsetning var því miður ekki í boði á næstunni og var mótið því fært til Reykjavíkur. JR- ingar áttu góðan dag og unnu samtals til fjórtán gullverðlauna, átta silfur og þriggja bronsverðlauna. Til hamingju með árangurinn. Hér eru úrslitin og videoklippa.