Það var flottur árangur hjá keppendum okkar á London Open í gær en þeir unnu samtals til fimm verðlauna. Í -90 kg flokki karla sigraði Mikael Ísaksson og Aðalsteinn Björnsson tók bronsið. Það snerist hinsvegar við í U21 árs aldursflokknum í sama þyngdarflokki en þar sigraði Aðalsteinn og Mikael hafnaði í öðru sæti. Í U21 árs aldursflokki +100 kg sigraði Arnar Arnarsson frá JS og í senioraflokki vann hann tvær viðureignir. Kjartan Hreiðarsson komst ekki á pall að þessu sinni en hann keppti í -100 kg þyngdarflokki karla og var aðeins einni glímu frá bronsverðlaunum. Til hamingju með frábæran árangur.




