Íslandsmeistaramótið í yngri aldursflokkum var haldið laugardaginn 9. maí hjá Judodeild Ármanns. Keppt var í aldursflokkum U13, U15, U18 og U21 árs. Keppendur voru rúmlega sjötíu frá níu klúbbum og margir ungir iðkendur að keppa á sínu fyrsta íslandsmeistaramóti. Keppt var á tveimur völlum þar sem margar skemmtilegar og spennandi viðureignir litu dagsins ljós. Þar sáust mörg glæsileg ippon köst sem og flott gólfglíma. Einhverjir voru að vinna sína fyrstu Íslandsmeistaratitla í þessum aldursflokkum en örugglega ekki þá síðustu. Þátttakendur frá JR voru þrjátíu og unnu alls fjórtán gullverðlaun, ellefu silfur og fimm bronsverðlaun. Mótið sem hófst kl. 11 og lauk um kl. 14 var vel heppnað og tókst vel til í alla staði. Hér neðar eru myndir af verðlaunahöfum og frá mótinu, videoklippa og úrslitin.






























































