Úrslit páskamóts JR 2026

Tuttugusta og fyrsta páskamót JR og Góu fór fram laugardaginn 11. apríl en það hefur ávalt verið haldið fyrstu helgina eftir páska. Mótið sem er opið öllum klúbbum er eitt vinsælasta og fjölmennasta mót ársins hjá yngri judo iðkendunum á aldrinum 5-14 ára. Flestir þátttakendur eru að stíga sín fyrstu skref í keppni og fá allir verðlaun að móti loknu. Keppninni var skipt upp í fjóra hluta og var fyrst keppt í aldursflokki barna 5-6 ára en það var eingöngu innanfélgasmót og fór fram á æfingu þeirra um morguninn. Næst var keppt í aldursflokknum 7-8 ára frá 12-13:30 síðan kepptu 9-10 ára börn frá 13:30-15 en þá hófst keppni í aldursflokkum 11-14 ára sem lauk um kl. 16:30. Keppnin hjá 10 ára og yngri er fyrst og fremst að læra hvernig á að bera sig að í keppni, skilja dómarann.

Þátttakendur í ár voru í heildina eitthundrað og þrír með 5-6 ára börnunum frá eftirfarandi klúbbum, Ármann, Grindavík, Selfoss, JDS, JG, Tindastól og Judofélagi Reykjavíkur. Með keppendunum komu þjálfarar og auk þeirra fjöldinn allur af foreldrum og eða aðstandendum.

Dómarar mótsins og starfsmenn voru eins og undanfarin ár nokkrir af okkar bestu judomönnum en það voru þau Aðalsteinn Björnsson, Jónas Guðmundsson, Mikael Ísaksson, Viktor Kristmundsson og Weronika Komendera sem dæmdu og þeir sem héldu utan um JR keppendurna voru Zaza Simonishvili, Gunnar Ingi Tryggvason og Jóhann Jónsson og mótsstjórn var á höndum þeirra Ara Sigfússonar og Jóhanns Mássonar. Hér eru úrslitin og video klippa og myndir frá mótinu hér neðar.