Judosamband Íslands vill vekja athygli á dagskrá Afmælismóts JSÍ yngri 2022 hefur verið hefur verið uppfærð.
Helstu breytingar:
U13/U15 (11-12 ára / 13-14 ára) Vigtun laugardaginn 19. febrúar frá kl. 11:00-11:30 og keppnin hefst svo kl. 12:00 og mótslok áætluð um kl. 13:00
U18/U21 (15-17 ára / 15-20 ára) Vigtun laugardaginn 19. febrúar frá kl. 12:00 – 12:30 en geta einnig vigtað sig kl 11-11:30 eða á föstudeginum 18. feb. frá kl 18 – 19 í JR.
Keppni hjá U18 hefst kl. 13 og keppni U21 strax að lokinni keppni í U18 sem gæti verið um kl. 13:30 til 14:00. Mótslok eru áætluð um kl. 15:00
Góumót JR 2022 sem er opið öllum klúbbum verður haldið laugardaginn 26. febrúar næstkomandi. Mótið sem fyrst var haldið árið 2009 hefur jafnan verið fjölmennt en það er hugsað sem æfingamót fyrir aldursflokka U9, U10 og U11 (8,9 og 10 ára) og fá allir þátttakendur verðlaun. Skráning er til miðnættis 21. febrúar í skráningarkerfi JSÍ og sjá forsvarsmenn klúbba um allar skráningar. Húsið opnar kl. 12:00 á laugardaginn og verða krakkarnir vigtaðir á milli kl. 12:00 og 12:30 og mótið hefst svo kl. 13:00 og áætluð mótslok kl. 15:00. Nánari tímasetning að lokinni skráningu. Muna að mæta með börnin á tilgreindum tíma í vigtunina svo enginn missi af þátttöku og mótið geti hafist samkvæmt áætlun. Hér er umfjöllun og myndir frá Góumótinu 2021.
Þeir Benas Paskevicius og Tristan Sverrisson tóku beltapróf í vikunni. Benas tók 4. kyu (appelsínugult belti) og Tristan 3. kyu (grænt belti) og stóðu þeir sig með sóma. Til hamingju með áfangann.
Í janúar lok og í þessari viku fóru fram nokkrar kyu gráðanir í JR. Þann 24. janúar tók Snorri Sveinn Lund 4. kyu (appelsínugult belti) og í dag fóru sex aðilar í 3. kyu (grænt belti) en það voru þau Emma Tekla Thueringer, Edgards Butevics, Orri Snær Helgason, Logi Andersen, Vésteinn Gunnarsson og Vilmar Tsirilakis Vilmarsson og auk þeirra tóku þeir félagar Fannar Frosti Þormóðsson og Benjamín Birgir Blandon sína næstsíðustu strípu sem er blá en þeir eru báðir 10 ára og er það ekki fyrr en á ellefta ári sem þeir fara í kyu gráðun og fá þá gult belti. Til hamingju öll með áfangann.
Afmælismót JSÍ 2022 í yngri aldursflokkum verður haldið 19. febrúar hjá Judofélagi Reykjavíkur og hefst það kl. 10:00.
Keppni hjá U13 og U15 hefst kl 10 og er til 12
Keppni hjá U18 hefst kl. 12:00 og U21 hefst kl 14
Vigtun U13 og U15 fer fram á keppnisstað á keppnisdegi kl 9 – 9:30 Vikmörk eru 1 kg í þeim aldursflokkum.
Vigtun U18 og U21 fer fram á keppnisstað á keppnisdegi frá kl 11-11:30 en einnig geta keppendur í þeim aldursflokkum vigtað sig frá kl 19-20 á föstudeginum fyrir mót á keppnisstað.
Muna blár og hvítur júdobúningur eða bara hvítur. Ekki bara blár búningur
Það voru tólf þátttakendur frá Judofélagi Reykjavíkur sem kepptu á Reykjavík Judo Open (RJO) sem haldið var 29. jan. 2022 í Laugardalshöllinni og þar af voru fimm þeirra á aldrinum 15-16 ára að keppa á sínu sterkasta senioramóti fram að þessu stóðu þeir sig frábærlega. JR-ingar unnu ein gullverðlaun, þrenn bronsverðlaun og auk þess kepptu tveir um bronsverðlun, þeir Ingólfur Rögnvaldsson -66 kg og Skarphéðinn Hjaltason -90 kg en en urðu að sætta sig við í 5 sætið og þrír urðu í sjöunda sæti en það voru þeir Logi Haraldsson -81 kg, Daron Hancock -73 kg og Mikael Ísaksson -66 kg. Það var Zaza Simonishvili sem stóð sig best allar en hann sigraði örugglega -73 kg flokkinn og allar fjórar viðureignirnar á ippon. Kjartan Hreiðarsson átti góðan dag en hann varð þriðji í -73 kg flokki og sýndi alveg ótrúlega flott judo, vann fjórar viðureignir af fimm og tapaði aðeins gegn Filip frá CZE sem keppti síðar við Zaza til úrslita. Árni Lund -81 kg vann í fyrstu viðureign Færeying og í annar viðureign vinnur hann Frakka og mætir þá Michal Pfaf frá CZE í fjórðungs úrslitum og er þar full kærulaus í gólfglímunni og Pfaf kemst í hengingu sem Árni gat engan vegin varist og tapar og þar með var gullið úr sögunni. Hann mætti síðar Agertoft frá Danmörku í keppninni um bronsið og sigraði þar örugglega. Gamla kempan Máni Andersen sem ekki hefur keppt um árabil mætti til keppni og gerði sér lítið fyrir og nældi sér í bronsverðlaunin í -90 kg flokki, vel gert hjá Mána.
Judosamband Íslands heldur nú í tíunda sinn Reykjavík Judo Open í samvinnu við RIG (Reykjavik International Games) og er þetta opið alþjóðlegt mót fyrir karla og konur sem verður haldið í Laugardalshöllinni laugardaginn 29. janúar og hefst með forkeppni frá 10:00 til 12:00 og brons og úrslitaglímur verða svo frá 14:00 til 15:30. Í gegnum tíðina hafa komið afar sterkir þátttakendur frá fjölmörgum löndum þar á meðal bæði heims og Ólympíumeistarar og í ár eru keppendur frá tólf þjóðum auk okkar bestu judomanna. RÚV verður með beina útsendingu frá keppninni frá kl. 14:00 en auk þess mun JSÍ streyma frá öllu mótinu, sjá tengla hér neðar.
Dómaranefnd JSÍ stóð fyrir dómaranámskeiði 25. janúar síðastliðinn og var það haldið í JR. Farið var yfir það nýjasta í reglum IJF og helstu áherslur og vafaatriði útskýrð. Námskeiðið var vel sótt en þátttakendur sem mættu á staðin auk leiðbeinenda voru fimmtán auk fjölmargra sem fylgdust með á Teams.
Í vikunni sem leið fóru fram nokkrar gráðanir í JR. Þann 17. janúar tók Helena Bjarnadóttir og Weronika Komendera 2. kyu (blátt belti), 19. janúar var Mikael Ísaksson gráðaður í 1. kyu (brúnt belti), Nökkvi Viðarsson í 2. kyu og Helgi Hrafnsson í 3. kyu (grænt belti) og í dag var Romans Psenicnijs gráðaður í 1. kyu og þeir félagar Elías Þormóðsson og Gunnar Ingi Tryggvason voru gráðaðir í 2. kyu. Til hamingju öll með áfangann.
Frá v-h. Mikael, Nökkvi, Helgi, Romans, Elías og Gunnar Ingi
Vinkonurnar Helena Bjarnadóttir og Weronika Komendera þreyttu gráðupróf í 2. kyu (blátt belti) í kvöld og stóðust það með glæsibrag. Til hamingju með áfangann.
Manage Cookie Consent
Þessi síða notar kökur (e. cookies) til að auðvelda þér að vafra um vefinn.
Functional
Always active
The technical storage or access is strictly necessary for the legitimate purpose of enabling the use of a specific service explicitly requested by the subscriber or user, or for the sole purpose of carrying out the transmission of a communication over an electronic communications network.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Statistics
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes.The technical storage or access that is used exclusively for anonymous statistical purposes. Without a subpoena, voluntary compliance on the part of your Internet Service Provider, or additional records from a third party, information stored or retrieved for this purpose alone cannot usually be used to identify you.
Marketing
The technical storage or access is required to create user profiles to send advertising, or to track the user on a website or across several websites for similar marketing purposes.