Kjör íþróttamanns Seltjarnarness í kvenna og karlaflokki fór fram í dag og var Aðalsteinn Karl Björnsson úr Judofélagi Reykjavíkur kjörinn íþróttamaður Seltjarnarnessbæjar 2025. Til hamingju með kjörið.

Afmælismót JSÍ 2026 í aldursflokki U18 og senioraflokkum var haldið í æfingasal Judofélags Reykjavíkur laugardaginn 24. janúar. Frá 2013 hefur Afmælismót seniora verið sameinað Reykjavík Judo Open sem er opið alþjóðlegt mót en því miður féll það niður í ár. Það voru rúmlega fjörtíu keppendur skráðir til leiks frá sex klúbbum og ánægjulegt að sjá allmarga nýliða spreyta sig sem stóðu sig vel. Mótið gekk vel fyrir fyrir sig, margar frábærar viðureignir sem enduðu oft á glæsilegum ippon köstum sem sjá má í meðfylgjandi videoklippu. Mótsstjórn var í höndum Ara Sigfússonar og tímaverðir voru þeir Gunnar Tryggvason og Viktor Kristmundsson og um dómgæslu sáu þeir Ármann Sveinsson, Björn Sigurðarson, Gunnar Jóhannesson og Yoshihiko Iura. Hér eru úrslitin myndir af verðlaunahöfum og frá keppninni og videoklippan.

Afmælismót JSÍ 2026 í aldursflokkum U18 (15-17 ára) og senioraflokki sem halda átti hjá ÍR laugardaginn 24. janúar hefur verið fært til JR að Ármúla 17. Vigtun verður hjá JR föstudaginn 23. jan. frá kl. 18:00-18:30 og á keppnisdegi frá kl. 11:30-12:00 og mótið hefst svo kl. 13. Nánar hér.
OTC æfingabúðum í Mittersill í Austurríki eru haldnar dagana 7-14 janúar en þær eru líkast til sterkustu æfingabúðir sem haldnar eru ár hvert í heiminum. Alla jafnan sækja þær bestu judomenn og konur heims og eru þær liður í undirbúningi þeirra fyrir stórmótin sem fara að hefjast eins og Grand Slam, Grand Prix og fleiri. Þau Helena Bjarnadóttir, Aðalsteinn Björnsson, Mikael Ísaksson, Romans Psenicnijs og Skarphéðinn Hjaltason eru á meðal þátttakenda í Mittersill ásamt Zaza Simonishvili landsliðsþjálfara. Hér má finna myndir frá æfingabúðunum.

Laugardaginn 3. janúar nk. fór fram sameiginlegt hóf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) í Hörpunni, þar sem ÍSÍ afhenti viðurkenningar til íþróttamanna sérsambanda ÍSÍ og kjör SÍ á Íþróttamanni ársins. Þar tóku þau Helena Bjarnadóttir og Aðalsteinn Karl Björnsson judomenn ársins við viðurkenningum sínum.

Æfingar hefjast á ný 5. janúar 2026 samkvæmt stundaskrá.
Byrjenda og framhaldsnámskeið 5-6 ára barna á laugardögum kl. 10
Byrjenda og framhaldsnámskeið 7-10 ára barna á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17
Byrjenda og framhaldsnámskeið 11-14 ára barna mánudaga, miðvikudaga, föstudaga kl. 17
Byrjendanámskeið 15 ára og eldri mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20
Gólfglíma, byrj./framh. 30 ára og eldri þriðjudaga, fimmtudaga kl. 17 og laugardaga kl. 11
Meistaraflokkur og framhald 15 ára og eldri alla daga vikunnar kl. 18
Kvennatími byrjendur og framhald 15 ára og eldri mánudaga og miðvikudaga kl. 17
Byrjendur fá fría prufutíma, komdu og prófaðu í viku, það er frítt. Ekki þarf að skrá sig í prufutíma, bara mæta á staðinn í réttan tíma og láta vita af sér, en það væri samt gott að fá tilkynningu um það á netfangið jr@judo.is. Hægt er að fá lánaðan judobúning í prufutíma en það er líka í lagi að mæta með síðar íþróttabuxur og bol. Judobúningar fást hjá JR.
Ef ákveðið er að halda áfram að loknum prufutíma þá er hér gengið frá skráningu og námskeiðsgjaldi. Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband í síma 588-3200 eða senda tölvupóst á netfangið jr@judo.is
Judofélag Reykjavíkur óskar öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir gömlu árin. Megi það nýja verða ykkur gæfuríkt.
Starfssemin hefst aftur 5. janúar á nýju ári samkvæmt stundaskrá, sjá nánar hér.

Judofélag Reykjavíkur óskar ykkur Gleðilegra Jóla.
Æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá 5. janúar, sjáumst.