London Open 2026

Það verða fjórir keppendur frá Íslandi á London Open 2026 um næstu helgi. Það eru þeir Aðalsteinn Björnsson og Mikael Ísaksson sem keppa í -90 kg flokki, Kjartan Hreiðarsson í -100 kg og Arnar Arnarsson +100 kg og munu þeir Aðalsteinn, Mikael og Arnar einnig keppa í U21 árs flokknum. Keppt verður í þeirra flokkum sunnudaginn 17. maí og ef einhver hlekkur finnst á mótið verður hann settur hér inn.