Heimsókn til JRB

Eftir vel heppnaða sameiginlega æfingu hjá Ármanni í lok mars var ákveðið að endurtaka leikinn og halda nú sameiginlega æfingu með JRB í þeirra æfingaaðstöðu. Þetta var afar skemmtileg æfing og vel sótt. Æfingunni stjórnuðu þau Elvira Dragemark þjálfari JRB og Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari. JRB endurgalt svo heimsóknina þegar þau mættu á æfingu hjá JR 18. maí.