Graz Junior European Cup 2026

Graz Junior European Cup í Austurríki var haldið dagana 30-31 maí og þar áttum við einn fulltrúa en Helena Bjarnadóttir var þar á meðal þátttakenda. Helena keppti í -70 kg flokki og mætti þar Jennet Hasanova frá Turkmenistan. Hún varð því miður að lúta í lægra haldi eftir hörku viðureign og engin uppreisnarglíma þar sem Jennet tapaði næstu viðureign. Helenu til aðstoðar var móðir hennar Marija Dragic Skúlason. Þátttakendur voru 617 frá 34 þjóðum, 381 karlar og 236 konur. Hér er drátturinn og sjá má glímurnar frá mótinu á JudoTv.