Í hádeginu 20. maí var tekin æfing í Himnastiganum í Kópavogi í blíðskapar veðri. Upp stigann voru hlaupnar tíu ferðir og síðan skokkað niður og smá pása áður en lagt var af stað í næstu ferð. Þrettán JR ingar voru mættir og kláruðu þeir allir verkefnið sem tók rétt rúman klukkutíma.











