Aðalfundur JR 2026

Aðalfundur JR var haldinn fimmtudaginn 28. maí. Jón Hlíðar Guðjónsson formaður JR setti fundinn og bauð fundargesti velkomna. Gengið til dagskrár og kosnir fastir starfsmenn fundarins. Ari Sigfússon var kosinn fundarstjóri og Eyjólfur Orri Sverrisson ritari. Fráfarandi stjórn flutti starfsskýrslu og lagði fram reikninga. Umræður um skýrslu og reikninga og fyrirspurnum svarað. Starfsskýrsla og reikningar bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða. Ein tillaga að lagabreytingu barst sem hafði að gera með að tillögur til skulu berast stjórn með viku fyrirvara, en ekki 2 vikna fyrirvara. Var tillaga borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Engar aðrar tillögur lágu fyrir fundinum.

Næst var komið að kosningu stjórnar og skoðunarmanns. Jón Hlíðar Guðjónsson var endurkjörinn formaður sem og allir aðrir stjórnarmenn frá síðasta ári þannig að stjórnina skipa ásamt Jóni Hlíðari þau Daníela Rut Daníelsdóttir, Eyjólfur Orri Sverrisson, Magnús Jóhannsson og Alfreð Atlason og í varastjórn Ari Sigfússon og Þormóður Jónsson kemur nýr inn og skoðunarmaður var kjörinn Runólfur Gunnlaugsson. Endurkjörinn formaður, Jón Hlíðar þakkaði fundargestum fyrir komuna og góða fundarsetu og sleit fundi.

fgnxfg