Ingunn Rut judokona ársins 2020

Judomenn ársins 2020 voru útnefnd í dag og hlutu þau viðurkenningar frá JSÍ og ÍSÍ. Einnig voru efnalegustu judomenn ársins útnefnd og veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Það voru þrír judomenn úr JR sem hlutu viðurkenningu í dag en Ingunn Rut Sigurðardóttir var kjörin judokona ársins og Andri Fannar Ævarsson og Danielé Kucyte voru ásamt fleirum kjörin þau efnilegustu.

Ingunn Rut Sigurðardóttir úr Judofélagi Reykjavíkur var valin judokona ársins 2020 og er það í annað skiptið sem hún hlýtur þann titil. Besti árangur hennar á árinu voru gullverðlaun í -78 kg flokki á Reykjavík Judo Open sem er opið alþjóðlegt mót og vann allar viðureignir sínar á ippon.

Sveinbjörn Jun Iura úr Judodeild Ármanns sem keppir í -81 kg flokki var valinn judomaður ársins 2020 og er það í fjórða skipti og það þriðja í röð sem hann verður fyrir valinu. Hann komst í þriðju umferð á Grand Slam Dusseldorf og endaði þar með í 9-16. sæti af 64 keppendum. Sveinbjörn er sem stendur stigahæstur Íslendinga á heimslista Alþjóða Judosambandsins en hann situr um þessar mundir í 69. sæti í -81 kg flokki.

Sveinbjörn Iura með Angeles í fastataki á Grand Slam Dusseldorf 2020

Efnilegastu judomenn ársins

Danielé Kucyte úr Judofélagi Reykjavíkur sem keppti í U18 -70 kg þyngdarflokki og Sara Ingólfsdóttir sem keppti einnig í U18 -57kg flokki úr Judodeild Selfoss voru útnefndar efnilegustu judokonur ársins 2020. Hrafn Arnarsson úr Judodeild Selfoss sem keppti í ýmist í U21 -90 kg flokki eða -100kg flokki og Andri Fannar Ævarsson sem keppti í U21 -90kg flokki voru útnefndir efnilegustu judomenn ársins 2020. Fyrir utan verðlaun á innlendum mótum þá vann Danielé til verðlauna á Pólsku alþjóðlegu móti í U16 -70 kg og Hrafn varð í 5. sæti í U21 árs -90 kg á Opna Skoska.

Daniel Dagur Árnason úr Judodeild Njarðvíkur fékk sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu unglings í fullorðins flokki á árinu en Daníel sem er 17 ára vann til bronsverðlauna á Reykjavík Judo Open 2020 í -60 kg flokki karla. Fyrir utan bronsverðlaun á RIG þá vann hann tvenn gull verðlaun og ein silfurverðlaun í U18 og U21 árs flokkum á árinu og af tólf viðureignum vann hann níu þeirra.

Frétt af heimasíðu JSÍ