Judomenn ársins 2020 voru útnefnd í dag og hlutu þau viðurkenningar frá JSÍ og ÍSÍ. Einnig voru efnalegustu judomenn ársins útnefnd og veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Það voru þrír judomenn úr JR sem hlutu viðurkenningu í dag en Ingunn Rut Sigurðardóttir var kjörin judokona ársins og Andri Fannar Ævarsson og Danielé Kucyte voru ásamt fleirum kjörin þau efnilegustu.
![](https://i0.wp.com/judo.is/wp-content/uploads/2020/12/Verdlaun3.jpg?resize=525%2C245&ssl=1)
Ingunn Rut Sigurðardóttir úr Judofélagi Reykjavíkur var valin judokona ársins 2020 og er það í annað skiptið sem hún hlýtur þann titil. Besti árangur hennar á árinu voru gullverðlaun í -78 kg flokki á Reykjavík Judo Open sem er opið alþjóðlegt mót og vann allar viðureignir sínar á ippon.
Judomenn ársins 2020
Ingunn Rut SIgurðardóttir og Sveinbjörn Jun IuraRIG 2020 – Ingunn með gullverðlaun
Sveinbjörn Jun Iura úr Judodeild Ármanns sem keppir í -81 kg flokki var valinn judomaður ársins 2020 og er það í fjórða skipti og það þriðja í röð sem hann verður fyrir valinu. Hann komst í þriðju umferð á Grand Slam Dusseldorf og endaði þar með í 9-16. sæti af 64 keppendum. Sveinbjörn er sem stendur stigahæstur Íslendinga á heimslista Alþjóða Judosambandsins en hann situr um þessar mundir í 69. sæti í -81 kg flokki.
![](https://i0.wp.com/judo.is/wp-content/uploads/2020/12/Svenni_GSDusseldorf2020.png?resize=525%2C255&ssl=1)
Efnilegastu judomenn ársins
Danielé Kucyte úr Judofélagi Reykjavíkur sem keppti í U18 -70 kg þyngdarflokki og Sara Ingólfsdóttir sem keppti einnig í U18 -57kg flokki úr Judodeild Selfoss voru útnefndar efnilegustu judokonur ársins 2020. Hrafn Arnarsson úr Judodeild Selfoss sem keppti í ýmist í U21 -90 kg flokki eða -100kg flokki og Andri Fannar Ævarsson sem keppti í U21 -90kg flokki voru útnefndir efnilegustu judomenn ársins 2020. Fyrir utan verðlaun á innlendum mótum þá vann Danielé til verðlauna á Pólsku alþjóðlegu móti í U16 -70 kg og Hrafn varð í 5. sæti í U21 árs -90 kg á Opna Skoska.
Andri Fannar Ævarsson og Hrafn Arnarsson Danielé Kucyte og Sara Ingólfsdóttir Danielé með bronsverðlaun í U16 -70 kg í Póllandi 2020
Daniel Dagur Árnason úr Judodeild Njarðvíkur fékk sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu unglings í fullorðins flokki á árinu en Daníel sem er 17 ára vann til bronsverðlauna á Reykjavík Judo Open 2020 í -60 kg flokki karla. Fyrir utan bronsverðlaun á RIG þá vann hann tvenn gull verðlaun og ein silfurverðlaun í U18 og U21 árs flokkum á árinu og af tólf viðureignum vann hann níu þeirra.
RIG 2020 – Daníel í 3. sæti -60 kg flokki karla Daníel Dagur Árnason