JR með sex gullverðlaun á Vormóti JSÍ 2026

Vormót JSÍ 2026 í seniora flokkum var haldið sunnudaginn 12. apríl hjá Judodeild ÍR og hófst það kl. 11 og lauk um kl. 13. Keppendur voru tuttugu og átta frá níu klúbbum. Keppnin var skemmtileg og oft á tíðum spennandi og óvænt úrslit litu dagsins ljós. JR- ingar voru hlutskarpastir og unnu öll gullverðlaunin fimm sem í boði voru í karlaflokki og ein af tvennum gullverðlaunum í kvennaflokki en JS (Judofélag Suðurlands) tóku hin.

Starfsmenn mótsins voru, Gísli Egilson og Bjarni Friðriksson mótsstjórn, Gunnar Ingi Tryggvason klukka og stigatafla og dómarar voru þeir Björn Sigurðarson, Gunnar Jóhannesson, Kolmar Jónsson og Sævar Sigursteinsson.
Hér eru úrslitin og videoklippa frá keppninni.

Úrslit páskamóts JR 2026

Tuttugusta og fyrsta páskamót JR og Góu fór fram laugardaginn 11. apríl en það hefur ávalt verið haldið fyrstu helgina eftir páska. Mótið sem er opið öllum klúbbum er eitt vinsælasta og fjölmennasta mót ársins hjá yngri judo iðkendunum á aldrinum 5-14 ára. Flestir þátttakendur eru að stíga sín fyrstu skref í keppni og fá allir verðlaun að móti loknu. Keppninni var skipt upp í fjóra hluta og var fyrst keppt í aldursflokki barna 5-6 ára en það var eingöngu innanfélgasmót og fór fram á æfingu þeirra um morguninn. Næst var keppt í aldursflokknum 7-8 ára frá 12-13:30 síðan kepptu 9-10 ára börn frá 13:30-15 en þá hófst keppni í aldursflokkum 11-14 ára sem lauk um kl. 16:30. Keppnin hjá 10 ára og yngri er fyrst og fremst að læra hvernig á að bera sig að í keppni, skilja dómarann.

Þátttakendur í ár voru í heildina eitthundrað og þrír með 5-6 ára börnunum frá eftirfarandi klúbbum, Ármann, Grindavík, Selfoss, JDS, JG, Tindastól og Judofélagi Reykjavíkur. Með keppendunum komu þjálfarar og auk þeirra fjöldinn allur af foreldrum og eða aðstandendum.

Dómarar mótsins og starfsmenn voru eins og undanfarin ár nokkrir af okkar bestu judomönnum en það voru þau Aðalsteinn Björnsson, Jónas Guðmundsson, Mikael Ísaksson, Viktor Kristmundsson og Weronika Komendera sem dæmdu og þeir sem héldu utan um JR keppendurna voru Zaza Simonishvili, Gunnar Ingi Tryggvason og Jóhann Jónsson og mótsstjórn var á höndum þeirra Ara Sigfússonar og Jóhanns Mássonar. Hér eru úrslitin og video klippa og myndir frá mótinu hér neðar.

Tóku þáttt í OTC Tata 2026

OTC Tata 2026 í Ungverjalandi var haldið dagana 30. mars til 3. apríl. Þátttakendur frá Íslandi voru þau Helena Bjarnadóttir, Jónas Guðmundsson, Kjartan Hreiðarsson, Mikael Ísaksson og Skarphéðinn Hjaltason. Þjálfarar og þeim til aðstoðar voru Bjarni Skúlason og Marija Dragic Skúlason. Á myndina hér ofar vantar Skarphéðinn og Mariju en hér er linkur á myndir frá æfingabúðunum.

Páskamót JR 2026

Páskamót JR og Góu verður haldið laugardaginn 11. apríl og nú í tuttugusta og fyrsta skiptið og er mótið opið öllum klúbbum eins og venjulega. Þar sem þátttaka er alla jafna mikil þá ætlum við að skipta mótinu í þrjá aldursflokka og klára hvern flokk fyrir sig og geta þá þeir keppendur og aðstandendur haldið heim. Fyrst verður keppt í aldursflokkum 7-8 ára (U8 og U9) f.ár 2018-2019, vigtun á keppnisdegi frá kl. 11:00-11:30 og keppnin frá 12-13:30. Næst verður keppt í aldursflokkum 9-10 ára (U10 og U11) f.ár 2016-2017, vigtun á keppnisdegi frá kl. 12:30-13:00 og keppnin frá 13:30-15:00. Að lokum verður keppt í aldursflokkum 11-14 ára (U13 og U15) f.ár 2012-2015, vigtun á keppnisdegi frá kl. 14:00-14:30 og keppnin frá 15:00-16:30. Sama dag verður Páskamót JR fyrir börn 5-6 ára haldið á æfingatíma þeirra frá 10-11 og er það eingöngu innanfélagsmót. Ef breytingar verða á dagskránni þá verða þær birtar hér að loknum skráningarfresti. Judoklúbbar sjá um skráningu (ekki foreldrar) í skráningarkerfi JSÍ og er skráningarfrestur til miðnættis 7. apríl. Engin lágmarksgráða, eingöngu hvítir judobúningar, keppnisgjald 2.000 kr. Myndin hér að ofan er frá Páskamótinu 2025 og hér má sjá úrslitin 2025 og video klippu.

Páskafrí frá og með 2. apríl

Það styttist í páskafrí hjá okkur en það verða æfingar á morgun, þriðjudag og miðvikudag og páskafrí hefst svo í öllum aldursflokkum á skírdag, fimmtudaginn 2. apríl. Æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl.

Vormót JSÍ 2026 fyrri hluti

Vormót JSÍ 2025 í aldursflokkum, U13/U15/U18/U21, verður haldið á Akureyri 21. mars í KA heimilinu. Mótið hefst kl. 10 og áætluð mótslok um kl. 16. Vigtun verður í KA heimilinu föstudagskvöldið 20. mars frá kl. 18-18:30 og einnig að morgni mótsdags frá 8:30-9:00. Farið verður með rútu frá JR föstudaginn 20. mars um kl. 14 og komið til baka daginn eftir um kl. 21. Kostnaður, rúta og gisting (hótel/uppábúin rúm með morgunmat) um 15.000 kr. sem JR leggur út fyrir og rukkar þátttakendur eftirá en JR greiðir keppnisgjaldið sem er 3.000 kr. á mann. Þátttakendur þurfa að hafa með sér pening fyrir mat og drykkjum sem hver og einn ákveður sjálfur. Með hópnum fara þrír til fjórir þjálfarar frá JR. Myndin hér ofar er af JR þátttakendum 2025.

OTC Nymburk 2026

Þau Helena Bjarnadóttir og Aðalsteinn Björnsson ásamt Zaza Simonishvili halda til Tékklands að loknu Junior EC í Portugal til að taka þátt í OTC Nymburk æfingabúðunum sem haldnar verða dagana 9-16 mars. Þar munu þau hitta fyrir Weroniku Komendera, Mikael Ísaksson, Romans Psenicnijs, Skarphéðinn Hjaltason og Viktor Kristmundsson sem einnig sækja æfingabúðirnar og verða þau þar í fimm daga frá 9. til 13. mars. Á myndina hér ofar vantar Romans. Æfingabúðir þessar eru haldnar árlega og eru liður í röð æfingabúða í Evrópu sem nefnast Olympic Training Centre (OTC) og eru haldnar af Evrópska Judosambandinu (EJU) í samvinnu viðkomandi landssamband og koma þátttakendur allsstaðar að úr heiminum og skipta hundruðum en í fyrra voru þátttakendur tæplega 600 frá 36 þjóðum en í ár var sett nýtt met þegar þátttakendur voru tæplega 1.100 nánar hér.