Daníel með brons á EM-Newaza 2026

Daníel Árnason varð í þriðja sæti í +100 kg flokki seniora á Ne-Waza EM 2026 sem haldið var í Riga í Lettlandi um helgina. Hann sigraði fyrstu viðureign gegn Arm Vladimir frá Eistlandi, varð að lúta í lægra haldi gegn Raivis Cakstins frá Lettlandi sem stóð uppi sem sigurvegari síðar um daginn. Daníel keppti um bronsverðlaunin og mætti öðrum keppanda frá Lettlandi, Andris Palamarcuks og var það nokkuð jöfn glíma sem fór í gullskor og þar sigraði Daníel örugglega á ippon. Til hamingju með árangurinn Daníel.