Weronika með brons í Póllandi

Weronika Komandera nældi sér í bronsverðlaun í pólsku bikarkeppninni í U21 aldursflokki (Puchar Polski Juniorek i Juniorów) sem haldin var í Bytom í Póllandi 13. sept. síðastliðinn en þar keppti hún í -48 kg flokki. Weronika æfir í Póllandi þessa dagana og verður þar út september og jafnvel eitthvað lengur.