Haustmót JSÍ 2026 U18 og seniorar

Haustmót JSÍ 2026 fyrri hluti verður haldið laugardaginn 26. september í Íþróttahúsi Akurskóla að Tjarnarbraut 5 í Reykjanesbæ. Keppt verður í aldursflokkum U18 og senioraflokkum. Mótið hefst kl. 12 með keppni í U18 og strax að þeirri keppni lokinni hefst keppni í senioraflokkum og áætlað að mótinu ljúki um kl. 15:00. Vigtun fer fram í Akurskóla föstudaginn 25. sept. frá 18-18:30 og á sama stað fyrir þá sem það vilja á keppnisdegi frá kl. 10:30-11:00. Lokaskráning mánudagurinn 21. sept.