Haustmót JSÍ 2026 (U13,U15 og U21)

Haustmót JSÍ 2026 (U13, U15 og U21) verður haldið laugardaginn 3. október í Íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi. Mótið hefst kl. 10 með keppni í aldursflokkum U13 og U15 og að þeirri keppni lokinni hefst keppni í U21 aldursflokki og mótslok áætluð um kl. 15. Vigtun á mótsstað föstudaginn 2. okt. frá 18-18:30 eða á keppnisdegi fyrir alla flokka frá 8:00-8:30 og U21 getur vigtað frá 11:00-11:30. Skráningarfrestur til miðnættis mánudagsins 28. sept. Þegar skráningu er lokið gæti þurft að endurskoða tímasetningar sem verða þá strax auglýstar.