Daníel Árnason úr JRB keppir á fyrsta Evrópumeistaramótinu í Newaza sem haldið dagana 29-30 ágúst og fer það fram í Riga í Lettlandi. Honum til aðstoðar er þjálfari JRB Nacif Elias. Egill Blöndal úr UMFS var einnig skráður til leiks en forfallaðist því miður á síðustu stundu. Keppendur eru 150 frá 18 þjóðum 111 karlar og 39 konur. Keppt er í cadet, juniora og senioraflokkum og keppir Daníel á morgun 30. ágúst í +100 kg flokki seniora. Búið er að draga og mætir hann Arm Vladimir frá Eistlandi. Keppnin hefst kl. 9 í fyrramálið á okkar tíma og á Daníel sjöttu viðureign á velli 2. Á judotv er hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu.


