Í heimsókn hjá ÍR

JR ingar heimsóttu Judodeild ÍR í kvöld og heldu félögin vel heppnaða sameiginlega æfingu sem að þeir Zaza Simonishvili og Gísli Egilson stjórnuðu. Þetta er þriðja heimsókn JR á árinu í aðra klúbba en í vor sóttum við heim Judodeild Ármanns og Judofélag Reykjanesbæjar og er ætlunin að heimsækja fleiri klúbba fyrr en seinna. Meðfylgjandi mynd er af þátttakendum að lokinni æfingu.