Það verður streymt frá mótinu í Bielsko-Biala sem að krakkarnir okkar taka þátt í og hefst mótið kl. 9:00 í dag. Keppt verður á tíu völlum og eru linkar á þá hér neðar en hér er drátturinn.
Keppa í Póllandi á laugardaginnn
Í gær lagði af stað til Póllands hópur keppenda úr JR í aldursflokkum U13/U15/U18 og munu þau keppa næsta laugardag á International Judo Tournament For Children and the Youth í Bielsko-Biala og sunnudaginn eftir mót taka þau þátt í eins dags æfingabúðum. JR ingar tóku þátt í þessu móti árið 2020 og unnu þar margar viðureignir og Danielė Kucyte vann til bronsverðlauna. Þau se,m taka þátt að þessu sinni eru Fannar Þormóðsson í U13, Orri Helgason í U15 og í U18 eru þau Aleksander Perkowski, Tristan Sverrisson, Elías Þormóðsson, Jónas Guðmundsson og Weronika Komendera og kepptu þau þrjú síðastnefndu einnig árið 2020. Þetta mót er fjölmennt og sterkt en síðast var keppt á tíu völlum og keppendur um tólfhundruð frá Tékklandi, Hollandi, Slóvakíu, Úkraníu, Ungverjalandi, Íslandi og auðvitað Póllandi. Þjálfarar og fararstjórar í ferðinni eru þeir Guðmundur Björn Jónasson, Janusz Komendera og Helgi Einarsson.
















Þormóður og Gunnar komnir með 4. dan
Gunnar Jóhannesson (UMFG) og Þormóður Jónsson (JR) þreyttu nú nýverið gráðupróf fyrir 4. dan og voru þeir uke hjá hvor öðrum. Katan fyrir 4. dan er Kime No Kata og er hún byggð upp af átta brögðum í krjúpandi stöðu og tólf í standandi stöðu og sýnir vörn og gagnsókn og er notkun hnífs og sverðs í hluta hennar. Prófið stóðust þeir með glæsibrag og óskum við þeim til hamingju með gráðuna. Hér er mynd af þeim félögum að lokinni gráðun.

F.v. Þormóður Jónsson og Gunnar Jóhannesson
Æfingabúðir Pajulahti í Finnlandi
Frétt af heimasíðu JSÍ. Hópur ungmenna úr unglingalandsliðum U18 og U21 eru nú við æfingar í Pajulahti, Finnlandi. Ásamt unglingalandsliði Íslands taka Finnar, Svíjar, Danir og Eistar þátt æfingabúðunum að þessu sinni. Æfingabúðirnar eru liður í undirbúning landsliðs fyrir þau mót sem eru framundan eru, en næst á dagskrá er Reykjavik Judo Open 2023 þann 28. janúar. Í hópnum að þessu sinni eru þau Aðalsteinn Björnsson, Mikael Ísaksson, Skarphéðinn Hjaltason, Helena Bjarnadóttir, Kjartan Hreiðarsson og Daron Hancock. Þjálfari og fararstjóri er Zaza Simonishvili.

Raysan og Konstantinos með 2. og 5. kyu
Þeir félagar Konstantinos Vergopoulos og Heully Raysan Santos Dantas sem æft hafa hjá JR um alllangt skeið þreyttu gráðupróf nú nýlega og var Konstantinos að taka gráðuna 5. kyu (gult belti) og Raysan tók gráðuna 2. kyu (blátt belti) og óskum við þeim til hamingju með áfangann.

Benjamín og Fannar komnir með gula beltið
Benjamín Birgir Blandon og Fannar Frosti Þormóðsson tóku próf fyrir gulabeltið í dag og stóðu sig með sóma enda búnir að æfa í mörg ár og búnir að bíða lengi eftir þessum áfanga því gulabeltið er ekki hægt að fá fyrr en á ellefta ári. Benjamín byrjaði að æfa níu ára gamall eða fyrir tveimur árum en Fannar byrjaði sex ára og er því búinn að æfa judo í fimm ár og var kominn með allar þær strípur sem hægt var að fá í gamla beltið sitt. Til hamingju með áfangann strákar.
Æfingar hefjast 2. janúar
Vorönn 2023 hefst 2. janúar samkvæmt stundaskrá og er skráning hafin.
Byrjenda og framhaldsnámskeið 5-6 ára barna hefst laugardaginn 7. janúar.
(Judobúningur fylgir byrjendanámskeiði, hámarksfjöldi 20 börn )
Byrjenda og framhaldsnámskeið 7-10 ára barna hefst þriðjudaginn 3. janúar.
Byrjenda og framhaldsnámskeið 11-14 ára hefst mánudaginn 2. janúar.
Byrjendanámskeið 15 ára og eldri hefst mánudaginn 9. janúar.
Gólfglíma, byrjendur/framhald 30 ára og eldri hefst þriðjudaginn 3. janúar.
Meistaraflokkur og framhald 15 ára og eldri hefst mánudaginn 2. janúar.
Allir byrjendur fá fría prufutíma fyrstu vikuna. Það er í góðu lagi að mæta í prufutíma með síðar íþróttabuxur og bol ef þú átt ekki judobúning eða eitthvað svipað en judobúninga er hægt að fá hjá JR.
Hér er er gengið frá skráningu en einning er hægt að hafa samband í síma 588-3200 eða senda tölvupóst á netfangið jr@judo.is
Helstu upplýsingar eins og æfingatími, gjöld, þjálfarar og fleira má finna undir Námskeið.
Gleðilegt nýtt ár
Gleðileg Jól
Judofélag Reykjavíkur óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Sjáumst hress á því næsta en æfingar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá 3. janúar.
Ingimundur Kárason 1. kyu
Ingimundur Kárason tók gráðuna 1. kyu (brúnt belti) 20. desember sl. og gerði það með glæsibrag en liðin eru allmörg ár síðan hann tók bláa beltið. Ingimundur hefur verið mjög virkur í fjölmennum hópi gólfglímumanna 30+ í JR og var Atli Þórðarson sem einnig æfir í þeim hópi, Uke hjá Ingimundi en Atli tók einmitt sjálfur gráðuna 1. kyu í nóvember s.l. Þess má til gamans geta að Ingimundur er sonur hins eina og sanna Kára Jokobssonar margfalds Íslandsmeistara JR inga hér á árum áður.