Reykjavíkurmótið var haldið í dag hjá Judódeild Ármanns í Laugardal. Keppendur voru frá Reykjavíkurfélögunum þremur þ.e. Judódeild Ármanns, Judódeild ÍR og Judófélagi Reykjavíkur. Keppt var í öllum aldursflokkum og voru þátttakendur tuttugu og fimm sem var í slakara lagi eins og reyndar undanfarin ár og þurfum við að gera skurk í því að iðkendur taki þátt í þessu móti sem og öðrum. Í karlaflokki var einn sameinaður flokkur, -73 og -81 kg og sigraði Gísli Egilson þann flokk örugglega og í kvennaflokki -70 kg sigraði Ingunn Sigurðardóttir og Árni Lund sem keppti í U21 sigraði einnig örugglega sameinaðann flokk -90 og -100 kg svo eitthvað sé nefnt en hér eru öll úrslitin og nokkrar myndir frá mótinu.
Grindavíkurheimsóknin 2018
Helgina 26-27 Október hélt Guðmundur B. Jónasson ásamt yngri hópnum hjá JR til Grindavíkur ásamt fylgdarliði fjórða árið í röð. Þessi hefð hefur reynst vel til að þróa góð tengsl á milli iðkanda ásamt því að bæta kunnáttu iðkenda á greininni. Guðmundur ásamt Arnari sem þjálfar judódeildina hjá Grindavík og Þrótt í Vogunum komu þessu á fyrir þremur árum síðan og hafa iðkendur ávallt haft gaman af. Þrátt fyrir þá tilviljun að það virðist alltaf þessa helgi þegar mótið er haldið vera kalt og eða vindasamt þá hefur Guðmundur ávalt fylgt því eftir að fara í þessa ferð og á hann hrós skilið fyrir það. Keppendur frá JR voru að þessu sinni 8 talsins en einhverjir forfölluðust. Gaman er að segja frá því að okkar yngsti iðkandi hann Fannar Þormóðsson var einn þeirra og var að keppa á sínu fyrsta móti. Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem hann fær að glíma við einhvern í sinni stærð enda alltaf lang yngstur á æfingum. Það fór honum bara vel að bregðast við þegar “hajime” hljómaði fyrst þann daginn enda átti hann fyrstu glímu dagsins. Bróðir hans og faðir eru miklir júdómenn eins og flestum er kunnugt svo hann hefur ekki langt að sækja hæfileikana. Allir glímdu vel og var augljóst að eftir að haustak var bannað hjá yngri keppendum þá sér maður mun flottari tækni og ALLS EKKERT færri köst. Reyndar var þetta bara æfingamót svo ekki var raðað í sæti og einstaka úrslit úr glímum því kanski auka atriði. Allir fengu gullpening, meira að segja Guðmundur þjálfari og Maja sem kom og dæmdi upp á 10. Svo var farið í sund, étnar pönnukökur í boði UMFG og komið sér fyrir í gistiaðstöðunni en þar gistu einnig iðkendur úr Þrótti. Um kvöldið var svo boðið upp á flatbökur og popp sem var maulað á yfir mynd sem sýnd var. Að því loknu var haldið niður í gistiaðstöðu og farið að sofa. Eða öllu heldur farið að sofa eftir að Guðmundur hafði staðið í stappi við iðkendur í dálítinn tíma. Krakkarnir vöknuðu svo fyrir allar aldir við lítinn fögnuð Arnars þjálfara en þeim tókst að vekja hann og viljum við JR-ingar biðjast velvirðingar á því. Þormóður Árni Jónsson mætti svo og stjórnaði æfingu að morgunmati (sem boðið var upp á) loknum klukkan 10, eftir það var haldið heim. Það er frábært að sjá hversu vel þessi hópur er samrýndur og foreldrar tilbúnir að leggjast á eitt til að krakkarnir fái sem mesta skemmtun og ánægju út úr þessu. Sem dæmi má nefna að Þormóður og Maja eru foreldrar iðkenda hjá okkur og svöruðu kallinu vel þegar óskað var eftir kröftum þeirra. Þessir krakkar hafa æft lengi saman, Jónas og Elías hafa t.d æft frá því að þeir voru á leikskólaaldri og virðast altaf meðvitaðir um að þegar einhver nýr kemur á æfingu þá þarf að passa upp á hann/hana og taka vel á móti viðkomandi. Eins þá fara þau í barna afmæli, heimsóknir, gistingar hvert hjá öðru og hafa farið í margar æfinga/keppnisferðir saman. Þetta gæti ekki gengið nema með aðstoð margra handa. Ég ætla að fullyrða að á bakvið þennan hóp er besti foreldrahópur sem um getur. Ef þessu starfi verður haldið áfram þá verða þar magnaðir judókeppendur á ferðinni í framtíðinni. Það er frábært hversu vel samstarfið hefur tekist við þessa klúbba Grindavík og Voga. Að geta nánast gengið að því vísu árlega að borga lítinn pening fyrir allt sem áður var upp talið er frábært og viljum við koma þakklætiskveðju til þeirra sem að því stóðu, sérstaklega Arnari Má þjálfara UMFG og UMFÞ.
Farnir til Japans
Þá eru þeir farnir í æfinga og keppnisferð til Asíu þeir Ægir Valsson, Egill Blöndal og Breki Bernhardsson en þeir lögðu af stað í dag til Japans þar sem þeir munu hitta fyrir Sveinbjörn Iura sem fór þangað í byrjun október og munu þeir æfa þar næsta mánuðinn. Sveinbjörn, Egill og Ægir munu taka þátt í Grand Slam Osaka 23. nóvember og síðan Egill, Sveinbjörn og Breki í Hong Kong Asian Open 1. desember. Þeir eru allir væntanlegir til Íslands aftur í byrjun desember og munu þá næst keppa á Reykjavík Judo Open í Laugardalshöllinni í lok janúar 2019.
Úrslit Haustmóts karla og kvenna 2018
Haustmót seniora 2018 var haldið á Selfossi 20. október s.l. Keppendur voru um þrjátíu manns frá fimm klúbbum. Úrslitin voru nánast eftir bókinni og unnu gullverðlaunahafarnir allar sínar viðureignir nokkuð örugglega ef frá eru taldar úrslitaviðureignirnar í -70 kg kvenna og -100 karla. Í -70 kg flokknum tapaði Ingunn Sigurðardóttir gegn Svenju Meissner en eftir venjulegan glímutíma hafði hvorugri tekist að skora og voru því jafnar og fór viðureignin því í gullskors keppni og þar náði Svenja wazaari á Ingunni og vann þar með viðureignina. Í -100 kg flokknum börðust þeir félagar Þór Davíðsson og Grímur Ívarsson til úrslita og var glíma þeirra jöfn og spennandi en Þór hafði skorað wazaari tiltölulega snemma og reyndi Grímur sitt ítrasta til að jafna. Báðir sköpuðu sér ágætistækifæri til að gera út um glímuna en Þór glímdi öruggt og hélt sínu og stóð að lokum uppi sem sigurvegari eftir fullum glímutíma. Hér eru myndir af verðlaunahöfunum og úrslitin.
Haustmót JSÍ 2018 – Seniorar
Haustmót seniora þ.e. 15 ára og eldri verður haldið á Selfossi laugardaginn 20. okt. næstkomandi, sjá nánar hér.
Skráningarfrestur til miðnættis mánudagsins 15. okt.
Keppni lokið í Glasgow
Því miður komust okkar menn ekki áfram í dag á European Judo Open í Glasgow. Sveinbjörn mætti Victor Busch frá Svíþjóð og gat sú viðureign farið á báða bóga en þeir hafa lent saman áður og skipst á að vinna. Victor hafði betur núna en viðureign þeirra hafði staðið í þrjár mínútur og hvorgur náð að ógna sem neinu nemur þegar Victor nær að skora Wazaari og aðeins ein mínúta eftir. Sveinbjörn reyndi sem hann gat til að jafna og í einni sókn sinni sem tókst ekki vel og lítið var eftir af glímutímanum lentu þeir í gólfglímu og komst Victor í fastatak og Sveinbjörn varð að játa sig sigraðan. Egill mætti Frakkanum Guillaume Riou og byrjaði vel því hann var kominn yfir eftir aðeins þrjátíu sekúndur er hann skoraði Wazaari með vel útfærðu Kata guruma og ekki langt frá því að klára glímuna í framhaldi af kastinu með armlás. Þetta kom Frakkanum örugglega á óvart og var hann öllu beittari eftir þetta og varð Egill að taka á honum stóra sínum og bjargaði sér oft snilldarlega úr erfiðri stöðu í gólfglímunni. Þegar tæpar tvær mínútur eru eftir jafnar Frakkinn þegar hann skorar Wazaari með Sumi gaeshi og gerði síðan út um glímuna þegar hann skorar annað Wazaari þegar um tuttugu sekúnur eru eftir af viðureigninni. Næstu verkefni hjá Agli og Sveinbirni verða í Asíu því þeir munu halda til Japans innan skamms ásamt þeim Breka Berhardssyni og Ægi Valssyni og verða þar við æfingar í umþað bil tvo mánuði og keppa á Grand Slam í Osaka 23. nóvember og 1. desember á Hong Kong Asian Open.
Egill og Sveinbjörn keppa í Glasgow
Egill Blöndal (-90 kg) og Sveinbjörn Iura (-81 kg) eru komnir til Skotlands ásamt Jóni Þór Þórarinssyni landsliðsþjálfara og þar munu þeir taka þátt í European Judo Open í Glasgow þann 7. okt. Búið er að draga og sitja þeir báðir hjá í fyrstu umferð. Eftir góðan árangur á heimsmeistaramótunu í september þá flugu þeir upp heimslistann svo um munaði og eru komnir í 110 og 112 sæti. Vegna þessa þá er þeim forraðað á þessu móti, hvor í sínum flokki en það er gert við átta efstu menn heimslistans sem eru á meðal þátttakenda. Sveinbjörn mætir annaðhvort Svía eða Spánverja en Egill mætir Frakka. Hér er drátturinn, hér er keppnisröðin og hér er bein útsending. Keppnin hefst kl. 9 að Íslenskum tíma og á Sveinbjörn áttundu glímu á velli 1 og Egill á tuttugustu og fyrstu glímu á velli 2.
Haustmót yngri 2018 – Úrslit
Haustmóti JSÍ í yngri aldursflokkum þ.e. U21/U18/U15/U13 var haldið í Grindavík í dag laugardaginn 6. okt. Keppendur voru fimmtíu og sex og er það enn á ný fjölgun keppenda frá því fyrra þrátt fyrir að færri félög hafi tekið þátt að þessu sinni. Mótið var vel skipulagt hjá UMFG og umgjörð og aðstaða keppenda og starfsmanna góð. Dómararnir stóðu sig meða sóma að venju en það voru þeir Birkir Hrafn Jóakimsson, Breki Bernharðsson og Daníel Leó Ólason sem sáu um dómgæsluna. Keppnin hófst kl. 10:30 í aldursflokkum U13/U15 og kl. 11:30 í U18/U21 og mótslok voru kl. 14:30. Viðureignirnar urðu sjötíu og fimm og unnust sjötíu þeirra á ippon. Hér eru úrslitin.
Haustmót yngri 2018
Haustmót JSÍ í yngri aldursflokkum þ.e. U21/U18/U15/U13 verður haldið í íþróttahúsinu Röstinni í Grindavík laugardaginn 6. okt. næstkomandi. Vegna mikillar þátttöku verðum við að byrja örlítið fyrr en við ætluðum en sextíu og fimm keppendur eru skráðir til leiks og hefst mótið kl. 10:30 í aldursflokkum U13 og U15 og lýkur þeim flokkum um kl. 11:30. Þá hefst keppni í aldursflokkum U18 og U21 árs og ætti henni að ljúka um kl. 15:00. Vigtun fyrir U13 og U15 er frá 9:30-10:00 og geta U18 og U21 líka vigtað sig þá en annars er þeirra vigtun frá 10:30-11:00. Hér er keppendalistinn.
Ægir með gull í Dublin
Ægir Valsson gerði sér lítið fyrir og tók gullið á Dublin Open í dag. Ægir sem ætlaði sér að keppa í -90 kg flokki þurfti að keppa við sér þyngri menn þar sem -90 og +90 kg flokkarnir voru sameinaðir. Í flokknum voru sex keppendur og sigraði Ægir þá alla örugglega en úrslitaviðureignin var strembin en þar keppti hann gegn Írskum þungavigtara sem Ægir sigraði að lokum og gullið var hans. Til hamingju Ægir.