Það verður ein aukaæfing haldin milli jóla og nýárs hjá 11-15 ára og verður hún mánudaginn 28. desember frá kl. 17 til 18:30. Vonast til að sjá sem flesta. Gleðileg Jól.
![](https://i0.wp.com/judo.is/wp-content/uploads/2020/12/Jolamynd2020_2_Logo_Stars_1.jpg?resize=525%2C234&ssl=1)
Það verður ein aukaæfing haldin milli jóla og nýárs hjá 11-15 ára og verður hún mánudaginn 28. desember frá kl. 17 til 18:30. Vonast til að sjá sem flesta. Gleðileg Jól.
Judomenn ársins 2020 voru útnefnd í dag og hlutu þau viðurkenningar frá JSÍ og ÍSÍ. Einnig voru efnalegustu judomenn ársins útnefnd og veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur. Það voru þrír judomenn úr JR sem hlutu viðurkenningu í dag en Ingunn Rut Sigurðardóttir var kjörin judokona ársins og Andri Fannar Ævarsson og Danielé Kucyte voru ásamt fleirum kjörin þau efnilegustu.
Ingunn Rut Sigurðardóttir úr Judofélagi Reykjavíkur var valin judokona ársins 2020 og er það í annað skiptið sem hún hlýtur þann titil. Besti árangur hennar á árinu voru gullverðlaun í -78 kg flokki á Reykjavík Judo Open sem er opið alþjóðlegt mót og vann allar viðureignir sínar á ippon.
Sveinbjörn Jun Iura úr Judodeild Ármanns sem keppir í -81 kg flokki var valinn judomaður ársins 2020 og er það í fjórða skipti og það þriðja í röð sem hann verður fyrir valinu. Hann komst í þriðju umferð á Grand Slam Dusseldorf og endaði þar með í 9-16. sæti af 64 keppendum. Sveinbjörn er sem stendur stigahæstur Íslendinga á heimslista Alþjóða Judosambandsins en hann situr um þessar mundir í 69. sæti í -81 kg flokki.
Efnilegastu judomenn ársins
Danielé Kucyte úr Judofélagi Reykjavíkur sem keppti í U18 -70 kg þyngdarflokki og Sara Ingólfsdóttir sem keppti einnig í U18 -57kg flokki úr Judodeild Selfoss voru útnefndar efnilegustu judokonur ársins 2020. Hrafn Arnarsson úr Judodeild Selfoss sem keppti í ýmist í U21 -90 kg flokki eða -100kg flokki og Andri Fannar Ævarsson sem keppti í U21 -90kg flokki voru útnefndir efnilegustu judomenn ársins 2020. Fyrir utan verðlaun á innlendum mótum þá vann Danielé til verðlauna á Pólsku alþjóðlegu móti í U16 -70 kg og Hrafn varð í 5. sæti í U21 árs -90 kg á Opna Skoska.
Daniel Dagur Árnason úr Judodeild Njarðvíkur fékk sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi frammistöðu unglings í fullorðins flokki á árinu en Daníel sem er 17 ára vann til bronsverðlauna á Reykjavík Judo Open 2020 í -60 kg flokki karla. Fyrir utan bronsverðlaun á RIG þá vann hann tvenn gull verðlaun og ein silfurverðlaun í U18 og U21 árs flokkum á árinu og af tólf viðureignum vann hann níu þeirra.
Síðasta æfing fyrir jól hjá 4-6 ára verður laugardaginn 19. desember en hjá 7-10 ára og 11-14 ára föstudaginn 18. des. en þá verður sameiginleg æfing með báðum þessum aldursflokkum og er mæting kl. 17. Að lokinni æfingu verður boðið í jólakaffi/gos og kökur. Reglulegar æfingar hefjast svo aftur 4. janúar 2021 samkvæmt stundaskrá. Mánudaginn 4. janúar hefjast æfingar hjá 11-14 ára, þriðjudaginn 5. janúar hefjast æfingar hjá 7-10 ára og laugardaginn 9. janúar hefjast svo æfingar hjá 4-6 ára. Æfingar 16 ára og eldri hefjast ekki fyrr en 12. janúar ef Covid-19 kemur ekki í veg fyrir það en eins og er er æfingabann hjá þessum aldursflokki. Þetta verður allt saman auglýst aftur þegar nær dregur.
Laugardaginn 12. desember tóku nokkur börn í æfingahópnum 4-6 ára sitt fyrsta beltapróf og stóðu sig alveg frábærlega og fengu sína fyrstu strípu (fjólubláa) í beltið sitt. Þau þurftu að sýna eitt fastatak, sýna hvernig á að detta afturábak og passa höfuðið og hvernig á að hneigja sig sem í stuttu máli þýðir virðing og tillitssemi gagnvart félaga sínum. Því miður komust ekki öll börnin á námskeiðinu á þessa æfingu og því verður annað beltapróf fyrir þau næsta laugardag. Hér neðar eru myndir af judo iðkendunum í “kaffihléi ” og önnur að prófi loknu. Með á myndinni er Ingunn Rut Sigurðardóttir annar tveggja þjálfara þessa hóps og Mikael Ísaksson sem hefur aðstoðað á þessum æfingum.
Aðalfundur JR verður haldinn í húsnæði okkar að Ármúla 17a mánudaginn 28. desember 2020 og hefst hann kl. 20:30
Íþróttaæfingar iðkenda fædd árið 2004 og fyrr eru heimilar með og án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deildum. Þetta þýðir þó ekki að ekki allir geti stundað íþróttir því þau lið sem ekki eru í efstu deild í sinni íþrótt geta ekki æft þótt liðið sé í meistaraflokki.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ákvað í dag breytingar á sóttvarnaráðstöfunum. Þær taka gildi á fimmtudag, 10. desember og eiga að vara til þriðjudagsins 12. janúar 2021.
Breytingarnar eru að mestu í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Reglurnar sem gilda frá 10. desember 2020 – 12. janúar 2021:
Ofangreint þýðir sem dæmi að ef félag er með kvennalið í efstu deild og karlalið í 2. deild þá má kvennaliðið æfa en ekki karlaliðið. Það þýðir enn fremur að séu fleiri en eitt félag í sveitarfélagi þá ræðst af því í hvaða deild liðið spilar hvort það megi hefja æfingar samkvæmt reglugerðinni.
Þetta þýðir líka að ungmenni, 16-18 ára, þurfa áfram að bíða eftir því að hefja æfingar með félögum sínum, séu þau ekki í meistaraflokki, afreksfólk í einstaklingsbundnum greinum eða að æfa utandyra án snertingar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef heilbrigðisráðuneytisins og í eftirfarandi reglugerðum heilbrigðisráðherra og minnisblöðum sóttvarnalæknis:
Af heimasíðu JSÍ.
Heilbrigðisráðherra hefur nú birt reglugerð varðandi opinberar sóttvarnaaðgerðir innanlands vegna COVID-19 frá og með 10. desember 2020 til 12. janúar 2021. Hér má sjá sóttvarnarreglur JSÍ sem uppfærðar voru 12.10.2020.
Sóttvarnar reglur JSÍ vegna Covid-19 uppf. 10.12.2020
Það helsta sem þarf að athuga í nýjustu uppfærslu reglnanna eru eftirfarandi atriði:
Íþróttir almennings: Öllum er heimilt að stunda skipulagðar æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar.
Hér er tengill/linkur á verkefni fyrir gráður frá gulu belti og upp í brúnt belti. (5kyu til 1. kyu)
Þá hafa þeir Sveinbjörn Iura og Egill Blöndal lokið keppni á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Prag dagana 19-21 nóv. Sveinbjörn Iura drógst á móti Marcel Cercea frá Rúmeníu í -81 kg. flokknum. Þetta var hörku viðureign og jöfn, báðir fengu refsistig eftir eina mínútu fyrir aðgerðarleysi og tæpri mínútu síðar fék Marcel aftur refsistig og nú fyrir ólögleg handtök en Sveinbjörn hafði pressað vel á hann og var kominn í góða stöðu. Marcel var kominn með tvö shido og hefði tapað glímunni ef hann fengi eitt til viðbótar og sótti nú stíft á Sveinbjörn en hann varðist með því að halda í beltið hjá Marcel og ýta honum frá sér en hélt of lengi og fékk sitt annað shido. Marcel var nú öllu ákveðnari og pressaði Sveinbjörn að endimörkum keppnissvæðiðsins og reyndi að fá hann til að stíga út fyrir það en þá hefði Sveinbjörn fengið sitt þriðja shido og tapað. Sveinbjörn reyndi að verjast því en við það opnaðist hann og Marcel var fljótur að átta sig og sópaði undan honum fótunum með Deashi harai og skoraði waza-ari og vann á því að lokum því ekki var meira skorað þegar glímutíminn rann út. Egill Blöndal mætti ofjarli sínum í -90 kg flokki en hann mætti Beka Gviniashvili gríðasterkum keppanda frá Georgíu. Hann er fyrrum heimsmeistari juniora og margfaldur verðlaunahafi á Grand Slam og Grand Prix mótunum og situr nú í 10 sæti heimslistans. Beka var öllu sterkari í tökunum og varð viðureign þeirra ekki löng því hann skoraði Ippon eftir skamman glímutíma en endaði sjálfur í þriðja sæti í flokknum síðar um daginn.
Evrópumótið er eitt allra sterkasta mótið sem haldið er ár hvert og engir veikir hlekkir þar. Í judo er keppt í fjórtán þyngdarflokkum, sjö kvennaflokkar og sjö karlaflokkar. Af þessum fjórtán flokkum eru tíu stigahæstu keppendur í heiminum í dag frá Evrópu og skiptist hnífjafnt á milli kynja, fimm í kvennaflokkum og fimm í karlaflokkum. Í hinum fjórum flokkunum sem eftir eru á Evrópa keppendur í fjórða og fimmta sæti í kvennaflokkum og öðru og þriðja sæti í karlaflokkum. Allir stigahæstu keppendur karla voru með á þessu Evrópumeistaramóti og þrjár af stigahæstu keppendum kvenna.
Það var líf og fjör hjá 11-14 ára hópnum í dag á fyrstu æfingu sem haldin var eftir að samkomubanni var aflétt en liðnar eru rúmar sex vikur frá síðustu æfingu. Næsta æfing er á morgun kl. 17:30 hjá börnum 7-10 ára. Þar sem að ekki er búist miklum fjölda fyrstu vikuna þá var ákveðið að leyfa aldurshópnum 11-14 ára að koma einnig á þá æfingu svo að það verður sameiginleg æfing á morgun fyrir 7-10 ára og 11-14 ára kl. 17:30-18:45. Hér eru nokkrar myndir frá æfingunni í dag.