Krílamót JRB var haldið sunnudaginn 20. sept. í Akurskóla. Keppendur voru um sextíu frá fimm félögum. Keppnin hófst kl. 13 og lauk um kl. 16:30. Þetta er æfingamót fyrir yngstu iðkendurna og er keppendum raðað saman eftir aldri og þyngd eins og venjulega og allir fá þátttökuverðlaun. Það voru þeir Zaza Simonishvili, Mikael Ísaksson, Viktor Kristmundsson og Jemerllein Machado sem héldu utan um keppendur JR. Hér eru úrslitin og videoklippa. Því miður hef ég ekki fleiri myndir frá verðlaunapallinum svo ef þið eigið myndir þá megiði gjarna senda á jr@judo.is til að setja hér inn.







