Haustmót JSÍ 2026 fyrri hluti – Úrslit

Haustmót JSÍ 2026 fyrri hluti var haldið í dag laugardaginn 26. september í Íþróttahúsi Akurskóla í Reykjanesbæ. Keppt var í aldursflokkum U18 og senioraflokkum. Mótið hófst kl. 12 og lauk um kl. 14. Mótið gekk vel fyrir sig og dómgæsla og mótsstjórn hin besta. Keppendur voru í færri kantinum í ár en veikindi spiluðu þar inní og auk þess voru nokkrir keppendur erlendis. Þátttakendur voru tuttugu og tveir frá fimm klúbbum, Ármanni, Grindavík, ÍR, JRB og JR. Keppendur JR-inga voru aðeins níu að þessu sinni og unnu þeir fimm gullverðlaun, tvö silfur og eitt brons. Hér eru úrslitin, myndir frá mótinu og videoklippa