Keppa á EC juniora í Paks

Paks Junior European Cup 2026  verður haldið dagana 11 – 12. júlí í Paks í Ungverjalandi. Skráðir keppendur eru 432 frá 37 þjóðum, 291 karlar og 141 kona. Þátttakendur frá Íslandi eru þau Helena Bjarnadóttir -70 kg, Jónas Björnsson -81 kg og þeir Aðalsteinn Björnsson og Mikael Ísaksson báðir í -90 kg flokki og með þeim er Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari. Eftir norðurlandamótið hafa þau verið við æfingar í Georgíu ásamt fleiri Íslendingum og ættu að vera vel undirbúin fyrir mótið. Dregið verður á föstudaginn og keppir Helena á laugardaginn og strákarnir á sunnudaginn. Hægt verður að fylgjast með mótinu hér í beinni útsendingu