Þá er keppni lokið í Paks á EC juniora. Helena -70kg, Jónas -81 kg og Mikael -90 kg töpuðu öll sinni fyrstu glímu og féllu þar með úr keppni þar sem andstæðingar þeirra komust ekki nógu langt áfram til að þau fengu uppreisnarglímu en þeir hefðu þurft að komast í undanúrslit. Aðalsteinn -90 kg átti hinsvegar góðan dag og komst í þriðju umferð. Hann sigraði fyrst Ungverja á ippon, næst mætti hann Serba sem komst yfir þegar hann skoraði wazaari en Alli var með tvö yuko. Þegar um 45 sekúndur voru náði Alli fallegu ippon kasti og sigraði glímuna og var þar með kominn í sextán manna útslátt. Þar mætti hann Rúmena en varð því miður að lúta í lægra haldi gegn honum en Rúmeninn skoraði yuko um miðja viðureignina og hélt því forskoti út glímutímann. Rúmenin tapaði næstu viðureign og þar með var Aðalsteinn fallinn úr keppni en Rúmeninn endaði í sjöunda sæti af 37 keppendum. Hér er hægt að sjá videoklippu frá glímunum hans Alla.


