Evrópumeistsramót Cadett 2026 (aldursflokkur 15-17 ára, U18) er haldið á Kanarí dagana 29. júní til 1. júlí. Evrópumeistaramót er eitt sterkasta mót sem haldið er í heiminum ár hvert í þessum aldursflokki og eru keppendur frá 43 þjóðum, 425, karlar og 193 konur. Frá Íslandi er aðeins einn keppandi, Eyja Viborg sem keppir -52 kg flokki og mætir hún Sofia Raffay frá Ungverjalandi. Þær eiga sjöundu glímu á velli tvö en á JudoTV er hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu.
30. júní 2026. Eyja keppti í morgun í -52 kg flokknum og mætti þar öflugri stúlku frá Ungverjalandi Sofia Raffay. Þetta var hörku glíma sem endaði með sigri Sofiu um miðjan glímutíma en þar sem hún tapaði næstu viðureign þá var engin uppreisnarglíma fyrir Eyju og hún þar með úr leik.



