Haustmót Selfossi – Uppfærður tími og vigtun

Haustmót JSÍ 2026 (U13, U15 og U21) verður haldið laugardaginn 3. október í Íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi. Mótið hefst kl. 10 með keppni í aldursflokkum U13 og U15 og að þeirri keppni lokinni um kl. 12 hefst keppni í U21 aldursflokki og mótslok áætluð um kl. 13:30. Vigtað verður á þremur stöðum, hjá JR, UMFS og JRB föstudaginn 2. okt. frá 18-18:30