Afmælismót JR 2026 í yngri aldursflokkum verður haldið laugardaginn 17. október í JR.
Mótið er opið öllum klúbbum, engin lágmarksgráða og keppt í eftirfarandi aldursflokkum.
Aldursflokkar: U8, U9, U10 og U11 (7, 8, 9 og 10 ára) fæðingarár, 2019, 2018, 2017, 2016.
Aldursflokkar: U13 (11-12 ára) f.ár 2015-2014 og U15 (13-14 ára) f.ár 2013-2012.
Vigtun fyrir 7-10 ára á mótsdegi frá kl. 11:00 til 11:30 og keppnin hjá þeim hefst svo kl. 12:00 og ætti að ljúka um kl. 14:00.
Vigtun fyrir 11-14 ára á mótsdegi frá kl. 13:00 til 13:30 og keppnin hjá þeim hefst svo kl. 14:00 og ætti að ljúka um kl. 16:00.
Mæta tímanlega í vigtun því eftir að henni lýkur eru þeir afskráðir sem mættu ekki.
Tímasetningar gætu breytst en það fer eftir þátttöku og ef svo fer verður það tilkynnt strax að lokinni skráningu.
Skráning til miðnættis 12. október í skráningarkerfi JSÍ.
Keppnisgjald 1.500 kr greiðist af félagi viðkomandi keppanda.
Athugið að það eru klúbbarnir sem sjá um skráningu keppenda, ekki foreldrar.



