Haustmót JSÍ seinni hluti – Úrslit

Seinni hluti Haustmóts JSÍ 2026 var haldið á Selfossi 3. október og hófst það kl. 10 og lauk því um kl. 13. Keppendur voru tæplega fimmtíu frá átta klúbbum og var keppt í aldursflokkum U13, U15 og U21 árs. Keppendur JR voru tuttugu og tveir unnu þeir til tuttugu og tveggja verðlauna, þrettán gullverðlaun, sjö silfurverðlaun og tvennbronsverðlaun. Dómarar voru þeir Atli Þórðarson, Björn Sigurðarson, Kolmar Jónsson og Sævar Sigursteinsson. Þetta var skemmtilegt mót með fullt af góðum og flottum viðureignum og voru allnokkrir þátttakendur að keppa þar á sinu fyrsta móti. Óskum við öllum til hamingju með árangurinn. Hér eru úrslitin, myndir frá keppninni og verðlaunahöfum og video klippa.