Judofélag Reykjavíkur (JR) hélt sitt árlega Afmælismót í yngri aldursflokkum 17. okt. síðastliðinn og hófst mótið kl. 12 og lauk því um kl. 16. Á mótinu er keppt í aldursflokkum frá 7 til 14 ára og engin gráðuskilyrði og allir yngstu þátttakendurnir að 10 ára aldri fá verðlaun. Á æfingu barna 5-6 ára hjá JR fyrr um morgunin var keppt í aldursflokki 5-6 ára. Þátttakendur voru samtals eitt hundrað í öllum flokkum og komu frá sex eftirfarandi klúbbum, Judodeild Ármanns, Judodeild Grindavíkur, Judodeild Selfoss, Judodeild Suðurnesjabæjar, Judofélagi Reykjanesbæjar auk JR. Keppnin var skemmtileg með fullt af flottum viðureignum og gaman að fylgjast með glæsilegum tilþrifum hjá þessum ungu iðkendum. Þeir Ari Sigfússon og Jóhann Másson sáu um mótsstjórn, dómarar voru þeir Atli Þórðarson, Jónas Guðmundsson og Kolmar Jónsson og þeir Zaza Simonishvili, Benjamín Úlfsson, Gunnar Tryggvason, Jemerllein Machado og Jóhann Jónsson héldu utan um keppendur JR-inga. Hér eru úrslitin, 5-6 ára , 7-10 ára og 11-14 ára og myndir af verðlaunahöfum og frá mótinu og stutt video klippa.


















































































