Að loknu norðurlandamótinu héldu átta JR-ingar til Tbilisi í Georgíu og munu þeir æfa þar fram í júlí en Zaza Simonishvili er einmitt þaðan og mun vera þeim innan handar. Þar munu þau fara í klúbba og æfa með gríðalega sterkum og reynslumiklum judomönnum en margir af bestu judomönnum í heimi koma einmitt frá Georgíu. Einnig munu þau örugglega fá tækifæri á því að reyna sig fleiri öflugum judomenn því reglulega koma keppendur frá öðrum sterkum judoþjóðum eins og t.d. Kasakstan til að æfa með Georgíumönnum. Þau sem fóru til Georgíu voru, Aðalsteinn Karl Björnsson, Jónas Björn Guðmundsson, Mikael Máni Ísaksson, Romans Psenicnijs, Skarphéðinn Hjaltason, Viktor Davíð Kristmundsson, Weronika Komendera og Helena Bjarnadóttir.






