EJU æfingabúðir í Papendal

Á sunnudaginn fóru þeir Egill Blöndal, Logi Haraldsson, Sveinbjörn Iura, Þormóður Jónsson og Ægir Valsson til Hollands þar sem þeir munu taka þátt í EJU æfingabúðunum í Papendal. Á föstudaginn halda svo allir nema Ægir til Slóvakíu og keppa þar á sunnudaginn á European Judo Cup í Bratislava en meira um það þegar nær dregur. Hér neðar er mynd sem tekinn var í Budapest nýlega af hluta þátttakenda í Papendal.

Sveinbjörn, Logi, Jón Þór og Egill

Kvennaæfing á Króknum

Um síðustu helgi var opinn landsliðsæfing kvenna haldin á Sauðárkróki í umsjón Önnu S. Víkingsdóttur landsliðsþjálfara. Æfingarnar voru fjórar og var sú fyrsta á föstudagskvöldið, tvær á laugardaginn og ein á sunnudag. Mættar voru bestu judokonur landsins sem æfðu þar ásamt ungum og efnilegum stúlkum.  







Opin landsliðsæfing kvenna
á Króknum í ágúst 2018

Búið í Budapest

Strákarnir höfðu ekki lánið með sér í Ungverjalandi á Budapest Grand Prix  en þeir féllu allir úr keppni í fyrstu umferð. Logi var lítið kominn inní glímuna þar sem hann hafði ekki náð ekki góðum handtökum á Nicon Zaborosciuc (MDA) sem virtist vera sterkari í þeim en það var þó ekkert farið að reyna á það að ráði því eftir aðeins rúma mínútu nær hann góðu taki á Loga og fer eldsnöggt inn í bragð með annari hendinni og fylgir vel eftir og Logi endaði á bakinu. Það var eitthvað svipað hjá Agli því þegar viðureignin var um það bil hálfnuð og eftir hörku baráttu þar sem ekki mátti á milli sjá hvor hafði betur þá nær Rafal Kozlowski  frá Póllandi skyndilega að festa hægri hendina á Agli og lagðist svo í seoi-nage en Egill náði ekki að stöðva sóknina og féll á bakið og ippon var dæmt. Það verður að segjast eins og er að bæði köstin þ.e. gegn Loga og Agli voru vel útfærð og falleg. Viðureign Sveinbjörns gegn Medickson Del Orbe (DOM) var nokkuð jöfn og hafði Sveinbjörn yfirhöndina fyrstu tæpar tvær mínúturnar en Medickson var þá kominn með shido fyrir sóknarleysi en þá var komið að Sveinbirni að fá refsistig. Þegar um tvær mínútur eru eftir fær hann sitt fyrsta shido fyrir “False Attack” (gervisókn) og annað aðeins hálfri mínútu síðar. Hann mátti því ekki fá fleiri refsistig því þá væri hann búinn að tapa. Eins og áður sagði voru þeir mjög jafnir og börðust vel og þegar um tuttugu sekúndur eru eftir að viðureigninni þá gerðist það, Sveinbjörn fær sitt þriðja shido og tapaði þar með glímunni.

Sveinbjörn, Logi, Jón Þór og Egill

Budapest Grand Prix 2018

Í morgun lögðu af stað til Budapest þeir Sveinbjörn Iura, Egill Blöndal og Jón Þór Þórarinsson landsliðsþjálfari. Þar munu þeir hitta fyrir Loga Haraldsson sem ásamt þeim tveim fyrstnefndu munu keppa á Budapest Grand Prix um næstu helgi. Keppendur koma frá fimm heimsálfum og níutíu þjóðum og eru þeir alls 626, karlarnir eru 371 og konurnar 255. Logi og Sveinbjörn keppa í -81 kg flokki laugardaginn 11. ágúst og Egill í -90 kg flokki á sunnudaginn og hefst keppni báða dagana kl. 8 að morgni að Íslenskum tíma. Í 81 kg flokknum eru sextíu keppendur og á Logi þriðju viðureign og mætir hann Nicon Zaborosciuc (MDA), Sveinbjörn á níundu eða tuttugustu og þriðju viðureign og mætir hann Medickson Del Orbe (DOM). Egill á tólftu eða tuttugustu og fimmtu viðureign í -90 kg flokknum þar sem keppendur eru fimmtíu og sjö og  mætir hann Rafal Kozlowski  frá Póllandi en hann keppti og vann -90 kg flokkinn á Reykjavík Judo Open 2018. Hér er hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu og hér er drátturinn og gamla útgáfan er hér.

Æfa í Gerlev í Danmörku

Á mánudaginn fóru fimm þátttakendur á æfingabúðirnar í Gerlev í Danmörku og verða þar út vikuna en æft verður tvisvar á dag. Öll Dönsku landsliðin (Seniors, Juniors og Cadett) verða með en auk þeirra er búist við um eitt hundrað þátttakendum víðs vegar úr Evrópu. Þau sem fóru frá Íslandi eru, Ásta Lovísa Arnórsdóttir, Breki Bernhardsson, Dofri Bragason, Edda Tómasdóttir og Ingunn Rut Sigurðardóttir.

Úrslit Grand Prix Zagreb og Junior European Cup Berlín


Það voru fimm íslenskir judomenn sem kepptu erlendis síðustu helgi þ.e. dagana 27 til 29 júlí en það voru þeir Grímur Ívarsson og Úlfur Böðvarsson sem kepptu á Junior European Cup í Berlín  og á Grand Prix í Zagreb kepptu þeir Egill Blöndal -90 kg, Logi Haraldsson og Sveinbjörn Iura báðir í -81 kg. Berlín í beinni útsendingu og hér er drátturinn. Grand Prix í Zagreb í beinni útsendingu og hér er drátturinn.

Það verður að segjast eins og er að okkar menn í Berlín áttu ekki góðan dag  og kanski ekki nema von því þeir eru eflaust orðnir þreyttir eftir fjórar keppnishelgar í röð og erfiðar æfingabúðir á milli en þetta er langhlaup og á þessi fjögurra vikna keppnis og æfingaferð örugglega eftir að skila sér síðar meir. Grímur átti fyrstu viðureign í -90 kg flokknum á sunnudaginn og mætti hann Luka Fettkoether frá Þýskalandi. Glíman var nokkuð jöfn og voru báðir aðilar komnir með tvö shido en Luka náði að skora Wazaari eftir rúma mínútu og ippon þegar tæp mínúta var eftir af viðureignini. Glíman hans Úlfs var öllu styttri og varla byrjuð þegar andstæðingur hans, Giovani Ferreira frá Brasilíu fór eldsnöggt inn í bragð og skoraði ippon með uchimata. Hér eru klippur úr viðureignum þeirra í Berlín.

Í Zagreb áttu okkar menn hörku glímur sem þeir reyndar töpuðu en þær hefðu alveg getað farið á hinn veginn en einhvern veginn lagðist ekkert með okkur þennan daginn. Logi mætti Tamazi Kirakozashvili frá Georgíu sem er fyrrum Evrópumeistari juniora og silfurverðlaunahafi frá heimsmeistaramóti Juniora og gullverðlaunahafi frá Grand Prix í Tiblisi 2018. Logi byrjaði af krafti og hafði í fullu tré við hann, náði sínum tökum og átti góðar tilraunir með uchimata og lyfti Tamazai upp en náði ekki að klára bragðið. Tamazai var mjög ógnandi og sótti í soto tsurikomi, tsuru komi goshi og kosoto gake og í einni sókninni sem að Logi varðist til að byrja með komst Tamzai með mikilli eftirfylgni í beer hug og kastaði Loga á uranage og fékk ippon fyrir kastið sem var kröftugt, hratt og vel stýrt en ekki endilega víst að Logi hafi lent á bakinu heldur frekar á hliðinni og ef svo er þá var ippon full vel gefið en shit happens. Þá var það Sveinbjörn en hann  mætti Sumpor Dominick frá Króatíu.  Sveinbjörn var síst lakari aðilinn og var hann sífellt ógnandi en því miður á árangurs. Þegar viðureignin er umþað bil hálfnuð fer Dominick í arfaslakt tomonage og einhvern veginn nær hann að snúa Sveinbirni á hliðina og skorar wazaari. Við fyrstu sýn virðist þetta ekki vera neitt og og dómarinn dæmir ekkert fyrr en hann fær tiltal í eyrað en þá eu tölvudómarar búnir að skoða kastið og sjá út að Sveinbjörn lendir á hliðinni að hluta og samkvæmt reglunum telst það wazaari. Eftir þetta skor pressaði Sveinbjörn enn meira og var Dominick kominn í vörn og með eitt shido en það dugði ekki til  Sveinbjörn náði ekki að skora og tapar hann viðureigninni á fyrrgreindu wazaari eftir fullan glímu tíma. Þá var komið að Agli en hann mætti Cassar Harrisson frá Ástralíu. Egill var hér sterkari aðilinn en eins og áður sagði féll ekkert með okkar mönnum. Egill átti líklega einar átta sóknir sem hann náði ekki að skora úr en Cassar tvær og skorar úr báðum. Fyrra skorið kom snemma í viðureigninni en Egill sótti í seoinage sem misheppnast en Cassar nær að koma með mótbragð og skorar wazaari. Egill pressar á Cassar og ógnar honum með ýmsum brögðun sem hann nær að verjast en fær á sig refsistig fyrir ólöglega vörn og sóknarleysi og er kominn með tvö shido og ef hann hefði fengið það þriðja þá hefði hann tapað glímunni og þess var ekki langt að bíða því Egil sótti stíft og pressaði á hann og var ekki langt frá því að jafna leikinn þegar hann náði beer hug á Cassar og nær ágætist kasti  en hann bjargaði sér á magann og ekkert skor.  Þegar um 45 sekúndur voru eftir reyndi Egill kouchi gari en var ekki í góðu jafnvægi og Cassar nýtti sér það og komst í tanio toshi og skorar annað wazaari og þar með var glímunni lokið.  Heilt yfir glímdu allir strákarnir okkar feyki vel í Zagreb, engin minnimáttarkennd þrátt fyrir þekkta og öfluga mótherja, sterkir í tökunum og alltaf ógnandi og hefði það verið sanngjarnt að bera meira úr býtum en raunin varð. Ef þeir halda áfram að æfa og glíma með sama hætti og þeir hafa gert og af þessum krafti þá verður þess ekki langt að bíða að  einhver þeirra komist í topp átta  á Grand Prix móti. Hér eru klippur frá glímunum þeirra í Zagreb.

Keppa í Zagreb og Berlín um helgina

Það verður nóg um að vera hjá Íslenskum judomönnum um þessa helgi. Grand Prix Zagreb hófst í dag 27. júlí og keppninni lýkur á sunnudaginn og Junior European Cup í Berlín hefst á morgun og lýkur einnig á sunnudaginn. Á Grand Prix keppa þeir  Logi Haraldsson og Sveinbjörn Iura báðir í – 81 kg flokki og Egill Blöndal í -90 kg flokki. Logi og Sveinbjörn keppa á morgun en Egill á sunnudaginn og það gera einnig þeir Grímur Ívarsson og Úlfur Böðvarsson í Berlín og keppa þeir báðir í -90 kg flokki.  Egill og Sveinbjörn voru tiltölulega heppnir með dráttinn þó svo að ekkert sé öruggt í þeim efnum og þeir þurfa örugglega að berjast grimmt fyrir sigri en það sama er ekki hægt að segja um Loga hann hefði getað verið heppnari með dráttinn. Sveinbjörn mætir Sumpor Dominick frá Króatíu og Egill mætir Cassar Harrisson frá Ástralíu en Logi mætir Tamazi Kirakozashvili frá Georgíu sem er fyrrum Evrópumeistari juniora og silfurverðlaunahafi frá heimsmeistaramóti Juniora og gullverðlaunahafi frá Grand Prix í Tiblisi 2018 svo róðurinn hjá Loga verður erfiður. Grímur á fyrstu viðureign í -90 kg flokknum á sunnudaginn í Berlín og mætir hann Luka Fettkoether frá Þýskalandi en Úlfur á tíundu viðureign í flokknum og mætir Giovani Ferreira frá Brasilíu. Keppnin hefst kl. 8 að morgni að Íslenskum tíma á báðum stöðum og báða dagana. Hér er hægt að fylgjast með Grand Prix í Zagreb í beinni útsendingu og hér er drátturinn.  Hér verður hægt að fylgjast með í beinni útsendingu frá Berlín og hér er drátturinn.

 

Björn kominn með alþjóðleg réttindi

Þá er keppni lokið á Junior European Judo Cup í Prag  og komust okkar menn því miður ekki áfram en þeir töpuðu allir fyrstu viðureign og fengu ekki uppreisn. Það sem þá  virðist skorta helst að sögn Hermanns Unnarssonar landsliðsþjálfara sem var með þeim á mótinu er kumi kata og keppnisreynsla en það er einmitt það sem þeir eru að vinna í með þessari keppnis og æfingaferð um Evrópu. Nú taka við viku æfingabúðir í Nymburk rétt utan við Prag og svo keppa þeir Grímur og Úlfur í Berlín um næstu helgi en Alexander kemst ekki á það mót og kemur heim. Gleðifréttirnar frá Prag eru þær að Björn Sigurðarson stóðst IJF dómaraprófið um helgina og er því kominn með alþjóðleg dómararéttindi, IJF Continental (IJF-B) og er hann fjórði Íslendingurinn til þess að öðlast þau. Það er ekki sjálfgefið að ná prófinu því margir eru tilkallaðir en fáir útvaldir. Vel gert og til HAMINGJU Björn.

Komnir til Prag og keppa um helgina

Junior European Judo Cup í Prag hefst í dag og eru strákarnir okkar mættir en þeir Alexander Heiðarsson, Grímur Ívarsson og Úlfur Böðvarsson eru á meðal keppenda og er Hermann Unnarsson landsliðsþjálfari með þeim í för til halds og trausts. Alexander hefur fyrst keppni en hann keppir í dag en hinir á morgun. Keppnin hefst kl. 8 að Íslenskum tíma báða dagana og fá þeir hörku andstæðinga. Hægt er að fylgjast með framvindunni hér og horfa hér á beina útsendingu. Alexander sem keppir í – 60 kg á sjöttu viðureign í flokknum og mætir Vadym Chernov frá Ukraníu. Úlfursem keppir í – 90 kg flokki á þriðju viðureign í flokknum mætir Eryk Ryciak frá Póllandi og Grímur sem einnig keppir í – 90 kg flokki á tólftu viðureign mætir Markus Seifert frá Þýskalandi. Björn Sigurðarson er einnig mættur til leiks en þetta er þriðja helgin í röð sem hann dæmir á Europen Judo Cup en samhliða mótinu verður haldið alþjóðlegt dómarapróf sem hann er þátttakandi í og nú krossum við fingurna og vonum að hann komi heim með alþjóðleg réttindi.

Keppni lokið í Paks, Björn dæmdi bronsglímu

Grímur, Alexander, Úlfur og Björn

Það gekk ekki alveg nógu vel hjá okkar mönnum á Junior European Cup í Paks um helgina. Úlfur átti fyrstu viðureign gegn Denis Turac frá Slovakíu og tapaði hann þeirri glímu eftir stutta viðureign er honum var kastað með bear hug sem wazaari var gefið fyrir og Denis komst síðan beint í fastatak í framhaldi af því. Grímur mætti Sebastian Schneider frá Austurríki og leit glíman ágætlega út í fyrstu og munaði ekki miklu að Grímur kæmist í fastatak eftir misheppnaða sókn hjá Sebastian. Í upphafi sóknar stuttu seinna kom Sebastina Grími á óvart með vel útfærðu Kosoto gake og skoraði fallegt ippon. Grímur fékk uppreisnarglímu og mætti Darko Brasnjovic frá Serbíu. Grímur var full rólegur og var kominn með tvo shido eftir rúma mínútu og varð því að skerpa sóknina og gerði það en það var hinsvegar serbinn sem átti hættulegri sóknir og náði hann að skora wazaari þegar um ein og hálf mínúta var eftir og Grímur fék sitt þriðja shido stuttu seinna og tapaði þar með glímunni. Alexander mætti Theau Giallurachis frá Frakklandi og var það hörkuglíma. Hart var barist um tökin og báðir reyndu seionage brögð en eftir umþað bil eina mínútu komst Theau inn í Sumi gaeshi og  skoraði wazaari og fylgdi eftir í gólfinu en Alexander varðist því. Ekki löngu seinna reyndi Theo aftur Seoi nage sem tókst ekki en hann fylgdi því vel eftir og við tók hörkugólfglíma sem endaði með því að hann komst í fastatak og vann glímuna á því og Alexander var þar með úr leik. Björn Sigurðarson dæmdi á mótinu og dæmdi hann meðal annars bronsglímuna í -66 kg flokki en það er ekki sjálfgefið að fá að dæma verðlaunaglímur svo Björn hefur verið að standa sig vel í dómgæslunni. Björn mun dæma á Junior European Cup í Prag eftir viku á og reyna þar að ná sér í alþjóðleg dómararéttindi en samhliða mótinu verður haldið dómarapróf sem hann verður þátttakandi í og er því reynslan af dómgæslunni í Paks gott veganesti fyrir hann. Björn heldur heim á morgun en við taka við æfingabúðir í Paks hjá strákunum fram til 19. júlí en þá halda þeir til Prag og keppa þar næsta laugardag og sunnudag og mun Hermann Unnarsson landsliðsþjálfari verða þeim til aðstoðar.  Hér er hægt að sjá allar glímurnar á mótinu í Paks bæði í dag og í gær. Úlfur og Grímur kepptu á velli 2 fyrri daginn (Úlfur 2:00) (Grímur 33:00 og 2:38:37) en Alexander á velli 3 seinni daginn (1:33:00) og bronsglíman sem Björn dæmdi er á velli 2 (7:11:30) seinni daginn. Hér er stutta útgáfan af glímunum þeirra.
Fyrri dagur: Völlur 1.  Völlur 2. Völlur 3. Völlur 4.
Seinni dagur:  Völlur 1.  Völlur 2. Völlur 3. Völlur 4.