Danish Open 2020 lokið

Þá er keppni lokið á Danish Open 2020 og gékk okkur mönnum misvel. Það gékk þó mun betur seinni keppnisdaginn þ.e. hjá u15 og u21 árs, glímufjöldinn var nánast sá sami og fyrri keppnisdaginn en það unnust næstum helmingi fleiri glímur. Vésteinn Bjarnason júdodeild Selfoss náði lengst, hann vann þrjár glímur en tapaði einni í U15 -60 kg flokki og fékk silfur, Daníel Árnason UMFN keppti um bronsverðlaunin í U21 -55 kg en tapaði þeirri viðureign og endaði í 5. sæti og Romans Psenicnijs úr JR vann tvær viðureignir og tapaði tveimur í U15 -46 kg flokki og varð í 7. sæti. Aðrir náðu ekki eins langt en nokkrir unnu ýmist eina til tvær glímur og áttu frábær köst eins og t.d Ouchi-gari hjá Alla Kalla og Logi Haralds átti frábært kast í einni uppreisnarglímunni svo eitthvað sé nefnt en það má líklega sjá allar glímurnar hér á næstu dögum. Það sem virtist helst skorta hjá flestum okkar keppendum og háði þeim var kumi kata, sem var lítið /lélegt og er það eitthvað sem þarf að taka fyrir og bæta á næstu misserum. Hér eru öll úrslitin og hér er linkur á nokkrar glímur hjá Alla Kalla og Romans.

Grand Slam Paris er lokið

Sveinbjörn Iura keppti í dag á Paris Grand Slam 2020 og mætti þar  Michael Aristos frá Kýpur. Þetta var jöfn viðureign en Sveinbjörn þó öllu sterkari. Þegar venjulegum glímutíma var lokið hafði hvorugur skorað en Michael var kominn með eitt refsistig. Eftir umþaðbil eina mínútu í gullskorsviðureigninni fékk hann sitt annað refsistig og það stefndi í sigur fyrir Sveinbjörn en skömmu síðar komst Michael í góða sókn og skoraði ippon með vinstra ouchi gari og þar með var keppni lokið hjá Sveinbirni. Það sem mesta athygli vakti í dag var þegar Teddy Riner tífaldur heimsmeistari og tvöfaldur Ólympíumeistari tapaði en hann hafði verið ósigraður í tíu ár og unnið 154 viðureignir í röð. Hér má sjá öll úrslitin og hér er glíman hans Sveinbjörns. Næsta mót hjá Sveinbirni verður 22. febrúar í Þýskalandi á Dusseldorf Grand Slam.

Sveinbjörn keppir á Paris Grand Slam

Paris Grand Slam 2020 hefst á morgun og er Sveinbjörn Iura á meðal þátttakenda og er Þormóður Jónsson honum til aðstoðar. Sveinbjörn keppir á sunnudaginn og hefst keppnin kl. 7:30 að íslenskum tíma. Dregið var í dag og situr Sveinbjörn sem er í 81. sæti heimslistans hjá í fyrstu umferð en mætir þá Michael Aristos frá Cyprus sem er í 182 sæti heimslistans og má segja að það hafi verið góður dráttur fyrir Sveinbjörn á þessu gríðasterka og fjölmenna móti sem GS Paris er en Michael er þó sýnd veiði en ekki gefin. Ef vel gengur í fyrstu umferð þá mætir Sveinbjörn að öllum líkindum Frank De Wit frá Hollandi sem er í 10. sæti (WRL) og verður það ekki auðveld viðureign. Þátttakendur eru 688 frá 5 heimsálfum og 117 þjóðum. Karlarnir eru 411 og konurnar eru 277. Hér er keppnisröðin og á Sveinbjörn líklega 23 viðureign á velli 1. Hér er bein útsending frá mótinu.

Keppa á Danish Open 2020

Danish Open 2020 verður haldið næstu helgi þ.e dagana 8. og 9. febrúar í Vejle í Danmörku. JSÍ hefur valið keppendur til að keppa í seniora, u21 og u18 aldursflokkum og koma þeir frá KA, Selfossi, UMFN og JR. Auk þess sendir JR og Júdodeild Selfoss keppendur í ofangreinda aldursflokka og einnig í u15 svo alls eru keppendur frá Íslandi tuttugu og tveir. Þeir sem keppa frá JR í senioraflokki eru Ásta Arnórsdóttir -57 kg, Ingunn Sigurðardóttir -70 kg, Logi Haraldsson -81 kg, Oddur Kjartansson -81 kg og Ægir Valsson -90 kg. Í u18 og u21 keppa þeir Kjartan Hreiðarsson -73 kg og Skarphéðinn Hjaltason -81 kg. Í U15 keppa þeir Aðalsteinn Björnson og Romans Psenicnijs í – 46 kg flokki og Daron Hancock og Mikael Ísaksson í -50 kg flokki. Keppni seniora og u18 verður á laugardaginn og u21 og u15 á sunnudaginn. Með JR hópnum fara þeir Guðmundur Jónasson, Hreiðar Oddsson og Ísak Jónsson. Íslenski hópurinn / allur keppendalistinn og linkur á beina útsendingu og hefst keppnin kl. 6:30 að íslenskum tíma á laugardaginn.

Tvö gull til JR á Reykjavík Judo Open 2020

Ingunn Rut Sigurðardóttir og Zaza Simonishvili sigruðu örugglega á Reykjavík Judo Open sem haldið var á laugardaginn. Ingunn sigraði alla sína andstæðinga í -78 kg flokknum á ippon og það gerði Zaza einnig í -73 kg flokki og Ásta Lovísa Arnórsdóttir tók bronsið í -57 kg flokki. Líklega var einna mest spennandi að fylgjast með úrslitaviðureigninni hjá Zaza gegn Yoan Tutunarov frá Noregi en Yoan komst yfir þegar um tvær mínútur voru liðnar og glímutíminn hálfnaður. Viðureignin hafði verið mjög jöfn og nú var að duga eða drepast fyrir Zaza og yrði hann að taka áhættu því nú gæti Yoan farið í passlega vörn til að halda sínu. Þegar ein mínúta var eftir bar sókn Zaza árangur og skoraði hann ippon með glæsilegu kasti við mikinn fögnuð áhorfenda. Hér neðar eru myndir af verðlaunahöfum, öll úrslitin og hér er linkur á video af öllum brons og úrslitaglímum.

Þetta var í áttunda skiptið sem JSÍ heldur Reykjavík Judo Open í samstarfi við ÍBR. Mótið gekk vel í alla staði, umgjörðin flott og vel haldið á öllum málum. Fjöldi sjálfboðaliða mætti og stóð vaktina og allar stöður voru vel mannaðar hvort heldur það voru dómarar, mótsstjórn, tíma og stigaverðir eða önnur þau störf sem sinna þurfti. Vel gert JSÍ.

Result/úrslit: 2013201420152016201720182019, 2020

Ingunn og Zaza júdomenn RIG 2020

Þau Ingunn Rut Sigurðardóttir og Zaza Simonis­hvili úr JR voru valin júdomenn Reykjavík Judo Open 2020 og eru þau bæði vel að því kominn en þau sigruðu flokka sína -73 kg og -78 kg með glæsibrag. Í veislu sem haldin var í Laugardalshöll í gærkveldi var þeim ásamt keppendum úr öðrum íþróttagreinum RIG veitt viðurkenning fyrir árangurinn. Til hamingju.

Sveinbjörn hefur lokið keppni í Ísrael

Sveinbjörn Iura keppti í dag á Tel Aviv Grand Prix og mætti þar Yusup Bekmurzaev frá Hvíta Rússlandi (BLR). Þetta var hörku viðureign sem því miður lauk með sigri Yusup eftir fullan glímutíma og þar með var keppni lokið hjá Sveinbirni. Yusup skoraði wazaari eftir rúma mínútu og vinnur á því kasti. Hann hinsvegar fékk á sig tvö shido fyrir óhóflega varnartilburði og það seinna þegar um tvær mínútur voru eftir og mátti því ekki við því að fá eitt í viðbót því þá hefði hann tapað glímunni. Glíman var samt frekar jöfn og áttu báðir ágætis tækifæri og var Sveinbjörn hársbreidd frá því að skora þegar um tíu sekúndur voru eftir en Yusup náði að bjarga sér og glímutíminn rann út. Hér má sjá öll úrslitin og hér er glíman hans Sveinbjörns. Næsta mót hjá Sveinbirni verður 8. febrúar í Frakklandi á Paris Grand Slam. Það er áhugavert að skoða skráða þátttakendur á GS París en Japanir mæta með algjört super lið karla og kvenna og tvo í hverjum þyngdarflokki eins og sjá má hér.

Dagskrá Reykjavík Judo Open 2020 og keppendalisti

Program/dagskrá laugardaginn 25. janúar 2020.
09:00 -12:00    Preliminary/Forkeppni

Mat 1.
09:00 -12:00    M-60, M-81, M+100, W-57, W-78

Mat 2.
09:00 -12:00    M-66, M-73, M-90, W -63, W-70

12:00 -14:00    Break/Hlé

14:00 -15:00    Bronze match/Brons viðureignir
W-57, W-63, W-70, W-78, M-60, M-66, M-73, M-81, M-90, M+100

15:00 -15:30    Final match/Úrslita viðureignir
W-57, W-63, W-70, W-78, M-60, M-66, M-73, M-81, M-90, M+100 

15:30 -16:00    Awards and closing ceremony
                        Verðlaunaafhending og mótslok.

Competitors/keppendur 2020

Hér eru eldri úrslit: 2013201420152016201720182019

Tel Aviv Grand Prix 2020

Tel Aviv Grand Prix hófst í dag og er Sveinbjörn Iura á meðal þátttakenda og er faðir hans Yoshihiko Iura honum til aðstoðar. Sveinbjörn keppir á morgun föstudag og hefst keppnin kl. 10 að morgni í Ísrael sem er þá kl. 8 í fyrramálið hjá okkur. Dregið var í gær dag og eru keppendur í 81 kg flokknum fimmtíu og fjórir. Sveinbjörn sem er í 82. sæti heimslistans mætir Yusup Bekmurzaev frá Hvíta Rússlandi sem er í 113 sæti heimslistans. Ef vel gengur í fyrstu umferð þá mætir Sveinbjörn líkast til Vladimir Zoloev frá Kyrgystan sem er í 35. sæti (WRL) og verður róðurinn þar örugglega erfiður. Þátttakendur eru 547 frá 5 heimsálfum og 83 þjóðum. Karlarnir eru 315 og konurnar eru 232. Hér er keppnisröðin og á Sveinbjörn 5 viðureign á velli 2 og hér er hægt að horfa á beina útsendingu.

Dómaranámskeið JSÍ

Dómaranefnd JSÍ hélt kynningu á dómarareglum IJF í gær og farið var yfir það nýjasta í reglunum, helstu áherslur og vafaatriði útskýrð. Var kynningin vel sótt og mættu tæplega þrjátíu manns.