Æfingar barna 6-15 ára hefjast í dag og verða æfingar á sömu dögum og á sama tíma. Fyrsta æfingin er í dag kl. 17:30.
Í dag taka í gildi nýjar reglur hvað varðar takmarkanir á samkomum vegna farsóttar sem Í dag taka í gildi nýjar reglur hvað varðar takmarkanir á samkomum vegna farsóttar sem heilbrigðisráðherra birti þann 21. apríl. Takmörkunin á samkomum tók gildi 4. maí 2020 kl. 00.00 og gildir til 1. júní 2020 kl. 23.59. Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar. Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.
Það var vel mætt á hlaupa/þrekæfinguna í dag, veðrið var í góðu lagi, smá gola og nánast þurrt og flestir voru að bæta sig og ná betri tíma. Af gefnu tilefni var að sjálfsögðu minnt á að virða tveggja metra regluna bæði á hlaupum og í myndatöku. Þeir sem mættu í dag voru Árni Lund, Oddur Kjartans, Þórarinn Rúnars, Andri Ævars, Ingunn Rut, Ingólfur Rögnvalds, Kjartan Hreiðars, Daníel Árna og Logi Haralds og nutum þau aðstoðar Halldórs Guðbjörnssonar sem var ekki bara margfaldur Íslandsmeistari í júdo heldur einnig margfaldur Íslandsmeistrari í hlaupum áður en hann hóf að æfa júdo. Hér eru myndir af hópnum en það vantar Loga sem þurfti að fara fyrr.
Það var vel tekið á því í Geitahlaupðinu um helgina en aðeins farnar þrjár ferðir. Árni Lund var fljótastur að þessu sinni og besti tíminn hjá honum var 1:56. Næsta æfing verður í dag.
Naoki Murata vinur okkar og fyrrum landsliðsþjálfari lést 9. apríl s.l. á sjötugasta og fyrsta aldursári en hann var fæddur 21. Júlí 1949. Hann kenndi júdo og þjálfaði í fjölmörgum löndum í gegnum tíðina og vorum við Íslendingar svo lánsamir að njóta hans frábæru starfskrafta og kunnáttu. Naoki kom fyrst til Íslands 1975 og var landsliðsþjálfari 1976-1977 og fór meðal annars með keppendur á fyrstu Ólympíuleika sem Íslenskir júdomenn tóku þátt í en það var í Montreal 1976.
Naoki hélt reglulega sambandi eftir að hann fór aftur til Japans og sendi ýmsan fróðleik eins og bækur, blöð, dagatöl og fleira. Í keppnis- og æfingaferðum landsliðsmanna okkar til Japans var Naoki þeim ávalt innan handar og afar hjálplegur. Hann kom nokkrum sinnum aftur til Íslands og tók þá gjarnan æfingu með okkur, nú síðast fyrir tveimur árum og við það tækifæri var honum veitt gullmerki JSÍ.
Naoki Murata sem er 8. Dan var mikils virtur fræðimaður, skrifaði og kom að útgáfu fjölda júdo bóka, hélt fyrlestra og námskeið víða um heim á vegum júdosambanda, var forstöðumaður Kodokan Judo safnsins í Tokyo og varaforseti Japanese Academy of Budo.
Við eigum Naoki Murata mikið að þakka. Hann lagði grunn að árangri fjölmargra Íslenskra júdomanna sem að stóðu sig vel á alþjóðlegum mótum síðar meir.
Ólympíuleikunum sem áttu að hefjast í sumar í Tokyo hefur verið frestað og munu þeir fara fram sumarið 2021. Óljóst er hvaða áhrif frestunin hefur á þátttökurétt keppenda því margir höfðu þegar tryggt sér þátttökurétt og aðrir voru á þröskuldnum og nokkur úrtökumót voru eftir. Búast má við að Alþjóða Júdosambandið (IJF) bregðist fljótt við og tilkynni hvernig framhaldið muni verða.
Nútíma Ólympíuleikar hafa verið haldnir á fjögurra ára fresti frá árinu 1896 og er þetta í fyrsta skipti í sögunni sem þeim hefur verið frestað en þeim hefur þó þrisvar sinnum verið aflýst en það var 1916 vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar og 1940 og 1944 vegna þeirra seinni.
Þeir félagar Jóhann Másson (JR) formaður JSÍ og Gísli Egilsson (JDÁ) hafa tekið gráðuna 3. dan og gerðu þeir það með glæsibrag. Þeir tóku prófið saman og voru Uke hjá hvor öðrum. Óskum við þeim til hamingju með áfangann. Hér eru myndir af þeim að lokinni gráðun.
Nokkrar gráðanir hafa verið í JR frá áramótum í öllum aldursflokkum og hefur verið venjan að birta myndir af nemendum að loknu prófi en eitthvað hefur það misfarist og hafa ekki allar myndir verið birtar en hér skal bætt úr því. Hér eru myndir af nokkrum JR ingum sem tóku beltapróf á þessu ári.
Þar sem samkomubann hefur verið sett á vegna COVID-19 veirunnar og augljóst er að í okkar íþrótt getum við ekki haldið 2 metra fjarðlægð á milli einstaklinga þá þurfum við því miður að fella niður æfingar hjá öllum aldursflokkum næstu fjórar vikur eða frá 16. mars til 14. apríl eins og bannið segir til um. Við munum fylgjast með fréttum frá íþróttahreyfingunni og opinberum aðilum af framvindu mála og vonumst til að geta hafið æfingar aftur sem allra fyrst aftur og birtum þá tilkynningu um það hér á síðunni.
Vormót JSÍ 2020 í seniora flokki (15 ára og eldri) verður haldið í Júdofélagi Reykjavíkur laugardaginn 21. mars næstkomandi. Skráning til miðnættis mánudaginn 16. mars og af gefnu tilefni þá sjá klúbbarnir um að skrá keppendur í skráningakerfið en ekki þátttakendur sjálfir eða foreldrar. Myndin hér að ofan af Kjartani og Mark og myndirnar hér neðar eru frá Vormótinu 2019.
Vormóti yngri flokka sem halda átti á Akureyri næstu helgi hefur verið frestað, nánar á JSÍ.
Manage Cookie Consent
Þessi síða notar kökur (e. cookies) til að auðvelda þér að vafra um vefinn.
Functional
Always active
The technical storage or access is strictly necessary for the legitimate purpose of enabling the use of a specific service explicitly requested by the subscriber or user, or for the sole purpose of carrying out the transmission of a communication over an electronic communications network.
Preferences
The technical storage or access is necessary for the legitimate purpose of storing preferences that are not requested by the subscriber or user.
Statistics
The technical storage or access that is used exclusively for statistical purposes.The technical storage or access that is used exclusively for anonymous statistical purposes. Without a subpoena, voluntary compliance on the part of your Internet Service Provider, or additional records from a third party, information stored or retrieved for this purpose alone cannot usually be used to identify you.
Marketing
The technical storage or access is required to create user profiles to send advertising, or to track the user on a website or across several websites for similar marketing purposes.