Þormóður útskrifaður úr þjálfaranámi IJF

Þormóður Jónsson útskrifaðist 3.sept. 2022 úr þjálfaranámi (Undergraduate certificate as Judo Instructor) IJF. Námið er sex mánaða langt, sem endar á vikulangri verklegri vinnustofu og prófum. Verklegi hluti námsins fór að þessu sinni fram í Madrid. Námið er á háskólastigi og telur 30 ECTS einingar og er á fimmta stigi (EQF).  (Frétt af heimasíðu JSÍ)