Skopje Junior European Cup 2026 verður haldið dagana 8 – 9. ágúst í Norður‑Makedóníu. Skráðir keppendur eru 317 frá 33 þjóðum, 211 karlar og 106 kona. Þátttakendur frá Íslandi eru þeir Romans Psenicnijs sem keppir í -73 kg flokki og Viktor Kristmundsson sem keppir í -100 kg flokki. Aðalsteinn Björnsson var einnig skráður á mótið en varð að hætta við þátttöku vegna meiðsla. Með þeim er Zaza Simonishvili landsliðsþjálfari. Búið er að draga og mætir Romans þýskum keppanda Raphael Akoto og Viktor mætir Bogdan Jovanovic frá Svartfjallalandi. Romans keppir á morgun laugardag og á hann sjöundu glímu á velli 1 og Viktor keppir á sunnudaginn og á hann þriðju glímu á velli 3. Keppnin hefst kl. 7:30 á okkar tíma á morgun og kl. 8 á sunnudaginn. Hægt verður að fylgjast með mótinu hér í beinni útsendingu. Að loknu móti halda þeir til Hollands og taka þátt í OTC æfingabúðunum í Papaendal.
10. ágúst. Romans tapaði viðureigninni gegn Raphael Akoto sem síðar um daginn stóð uppi sem sigurvegari í -73 kg flokknum. Romans fékk uppreisnarglímu gegn keppanda frá Búlgaríu en tapaði þeirri viðureign líka og var þar með úr leik. Viktor sem keppti í -100 kg flokki vann fyrstu viðureign gegn keppanda frá Svartfjallalandi og var þar með komimm í 16 manna útslátt. Þar mætti hann Dimitrije Savic (BIH) en varð að játa sig sigraðan og fékk ekki uppreisnarglímu þar sem Dimitrije tapaði næstu en Dimitrije endaði með bronsverðlaunin.


