JR með tvö gull, silfur og þrjú brons á NM

Það var flottur árangur sem náðist á norðurlandameistaramótinu 2026 sem haldið var í Finnlandi dagana 13. og 14. júní, þrír norðurlandameistarar, silfur og fjögur brons. Þátttakendur frá Íslandi voru tuttugu og tveir frá sex félögum. Keppendur JR voru sextán og komu þeir heim með tvenn gullverðlaun, eitt silfur og þrjú brons og urðu í 9. sæti þeirra klúbba sem bestum árangri náði. Þeir Aðalsteinn Björnsson -90 kg og Viktor Kristmundsson -100 kg urðu norðurlandameistarar í U21 árs aldursflokki og auk þess tók Aðalsteinn bronsið í karlaflokki og Viktor keppti um bronsverðlaunin í karlaflokki en tapaði þeirri viðureign. Weronika Komendera varð í öðru sæti í -52 kg flokki kvenna, Helena Bjarnadóttir tók bronsið í U21 -70 kg og það sama gerði Eyja Viborg í U18 -52 kg og auk þess keppti hún um bronsverðlaunin í U21 en varð að játa þar sig sigraða. Egill Blöndal (UMFS) varð norðurlandameistari í karlaflokki -100 kg og Arnar Arnarsson (JS) tók bronsverðlaunin í U21 +100 kg. Hér má finna úrslitin