Sumarmót JR 2026 sem opið er öllum klúbbum verður haldið laugardaginn 16. maí. Þetta er æfingamót fyrir aldursflokka U8, U9, U10 og U11 (7, 8,9 og 10 ára) og fá allir þátttakendur verðlaun. Skráning er til miðnættis 14. maí í skráningarkerfi JSÍ og ekkert þátttökugjald. Vigtun verður frá kl. 12 til 12:30 og keppnin hefst svo kl. 13 eða eins fljótt og hægt er að lokinni vigtun og mótslok um kl. 15. Nánari tímasetning að lokinni skráningu. Muna að mæta með börnin á tilgreindum tíma í vigtunina svo enginn missi af þátttöku og mótið geti hafist samkvæmt áætlun. Hér er umfjöllun og myndir frá sumarmótinu 2024 en það féll niður 2025.

