Reykjavíkurmeistaramótið 2026

Reykjavíkurmeistaramótið 2026 verður haldið hjá Judodeild Ármanns, Engjavegi 7 laugardaginn 21. nóvember og er í umsjón Ármanns í ár. Vigtun föstudagskvöldið 20. nóv. hjá JR frá 18 til 19 og einnig á mótsstað á keppnisdegi frá kl. 11:30 til 12:00. Mótið hefst kl. 13:00 og mótslok áætluð um kl. 16:00 en nánari tímasetning að lokinni skráningu. Keppt verður í öllum aldursflokkum þ.e. U13, U15, U18, U21 og karla og kvennaflokkum og lágmarksgráða er 5. kyu, gult belti. Reykjavíkurmeistaramótið er eingöngu keppni Reykjavíkurfélaganna. Lokaskráningardagur er miðvikudagurinn 18. nóv. í gegnum skráningarkerfi JSÍ.