Gert klárt fyrir ÍM karla og kvenna 2021

Það var vaskur hópur manna sem að tók til hendinni og standsetti keppnissvæðið fyrir Íslandsmeistaramót karla og kvenna sem haldið verður í íþróttahúsinu Digranes í Kópavogi á morgun 16. maí. Vel gekk að setja niður keppnisvellina enda vanir menn sem að því komu. Þormóður Jónsson bar hitann og þungann af framkvæmdinni og Davíð Áskelsson sá um tölvubúnaðinn með aðstoð sona sinna. Hér eru nokkar myndir frá standsetningunni í kvöld.

Hér er keppendalistinn en hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu þar sem JSÍ mun streyma frá mótinu. Völlur 1. og Völlur 2.