Því miður gékk okkar mönnum ekki nógu vel í dag á Junior European Judo Cup í Gdynia en þeir töpuðu báðir fyrstu viðureignum og engin uppreisn.Úlfur byrjaði og keppti gegn Ralph Hoogeboom frá Hollandi. Úlfur var full bráður og glíman vart byrjuð þegar hann sækir í Uchimata en Ralph var vel á verði og náði fallegu mótbragði á honum og skoraði ippon og Úlfur úr leik. Grímur glímdi stuttu síðar og var andstæðingur hans Bartosz Mackowski frá Póllandi. Þeirra viðureign var hnífjöfn og varði út allan glímutímann en Bartosz náði einu wazaari eftir um eina og hálfa mínútu og vann á því. Hér er hægt að skoða viðureignir þeirra í fullri lengd, Úlfur á 45:55 mín og Grímur 50:10. og hér er stutta útgáfan.





Vinur okkar Naoki Murata er væntanlegur til landsins á morgun. Fyrir þá sem ekki vita þá var hann þjálfari Judodeildar Ármanns frá 1975-1977 og landsliðsþjálfari okkar Íslendinga 1976-1977 og fór meðal annars með Gísla Þorsteinssyni og Viðari Guðjohnsen á Ólympíuleikana 1976 en það var í fyrsta skipti sem Íslenskir judomenn tóku þátt í þeim. Naoki Murata sem er 8. Dan er forstöðumaður Kodokan Judo safnsins í Tokyo og einnig er hann varaforseti Japanese Academy of Budo og er mjög virtur í judo fræðum í heiminum. Á Judo Festival í Porc í vikunni var hann með stórt hlutverk og sá meðal annars um 









Sveinbjörn Iura og Ægir Valsson fóru til Króatíu á sunnudaginn var og tóku þar þátt í OTC í Porec dagana 11-14 júní og með þeim í för var Yoshihiko Iura til halds og trausts. Þessar æfingabúðir sem eru vel sóttar af mörgum af sterkustu judomönnum og konum heimsins eru hluti af stórum viðburði sem heitir Judo Festival Porec og er nú haldinn í fimmta skiptið og stendur yfir frá 9-17 júní. Fyrir utan OTC æfingabúðirnar eru einnig æfingabúðir fyrir U13 og U15 og Cadetta U18 sem og barna fjölskyldu æfingabúðir, þarna er þjálfararáðstefna, kata kennsla og fleira og fleira og held ég að þetta sé eitthvað sem við ættum að huga betur að í framtíðinni.
Það var glæsileg uppskera hjá krökkunum okkar í Luxemborg í morgun en þar kepptu þau á alþjóðlegu móti sem heitir Challenge de la Ville de Differdange 2018 og unnu þau til fimm gullverðlauna í aldursflokknum U11 en það voru þau Emma Thueringer, Helena Bjarnadóttir, Weronika Komendera, Elías Þormóðsson og Jónas Guðmundsson sem það gerðu en því miður náði Mikael Ísaksson sem keppti í U13 og er á yngra árinu ekki í verðlaun að þessu sinni en hann er einn okkar besti keppandi í þessum aldursflokki og á örugglega eftir að landa nokkrum gullum erlendis í framtíðinni. Þetta var í fjórða sinn sem þetta mót var haldið og hefur keppendum og þátttökuþjóðum fjölgað verulega frá því að það var fyrst haldið árið 2015 en þá voru keppendur 107 frá þremur þjóðum (LUX, FRA, GER) og keppt á tveimur völlum, í fyrra voru keppendur 292 frá sex þjóðum en í ár var keppt á fjórum völlum og þjóðirnar orðnar sjö( LUX, SCO, GER, BEL, NED, FRA, ISL) . Því miður eru ekki komnar upplýsingar um keppendafjölda en búast má við því að enn hafi fjölgað svo þetta var einkar glæsilegur árangur og greinilegt að Guðmundur og aðrir þjálfarar okkar eru að gera rétta hluti. Til hamingju með frábæran árangur.














Fjölmennt lið úr JR lagði af stað í morgun til Luxembourg. Þar munu þau keppa á alþjóðlegu móti sem haldið verður á morgun í Differdange og taka síðan þátt í æfingabúðum daginn eftir. Mótið heitir Challenge International de la Villa Differdange og er fyrir bæði kynin í aldursflokkum U9 – U11 – U13 – U15 og U18. Við keppum þar í aldursflokkum U11 og U13 og erum við með sex keppendur og þeim fylgja þjálfarar og foreldrar. Keppendur okkar í U11 eru Emma Thueringer, Helena Bjarnadóttir, Weronika Komendera, Elías Þormóðsson, Jónas Guðmundsson og Mikael Ísaksson sem keppir í U13.


Logi Haraldsson tók þátt í