Dómaranámskeið JSÍ
Miðvikudaginn 10. apríl mun dómaranefnd JSÍ halda dómaranámskeið og verður það haldið hjá JR og hefst það kl. 20. Farið verður yfir það nýjasta úr dómarareglunum og áherslur. Ásamt dómurum og tilvonandi dómurum er mikilvægt að þjálfarar mæti einnig sem og helstu keppendur 15 ára og eldri.
Refereeing & Coaching Seminar
Þeir Birkir Hrafn Jóakimsson og Sævar Sigursteinsson JSÍ dómarar taka nú þátt í EJU dómara og þjálfararáðstefnu sem haldin er í Antalya í Tyrklandi dagana 22-24 mars. Þar er farið yfir allar helstu áherslur í dómgæslu og dómarareglunum. Þeir félagar munu síðan koma þeim upplýsingum áfram til okkur hinna á dómara og þjálfaranámskeiði JSÍ. Meðfylgjandi eru myndir frá ráðstefnunni og má sjá þá félaga á þeim.
Vormót seniora 2019 – úrslit
Vormót JSÍ í karla og kvenna flokkum var haldið í dag í judosal JR. Ófært var frá Akureyri svo að keppendum fækkaði eitthvað vegna þess sem og veikindi settu strik í reikningin. Mótið var þó mjög skemmtilegt og fullt af flottum og spennandi viðureignum og glæsilegum köstum. Hér eru nokkar myndir frá mótinu og úrslitin.
Vormót seniora 2019
Vormót JSÍ í karla og kvenna flokkum verður haldið laugardaginn 23. mars hjá JR og hefst kl. 10. Keppendur eru tæplega þrjátíu frá sex klúbbum. Vigtun fer fram í JR föstudagskvöldið 22. mars frá 18-20. Myndin sem hér fylgir er frá AM yngri 9. feb. 2019. Hér er keppendalistin.
JR með 9 gullverðlaun á Vormóti JSÍ 2019
Það voru rúmlega áttatíu keppendur sem tóku þátt í vel heppnuðu Vormóti JSÍ í yngri aldursflokkum á Akureyri í dag. Mótið var í umsjón KA og fórst þeim það vel úr hendi. Hægt var að fylgjast með framvindu mótsins á netinu og auk þess var bein útsending frá því á KA-TV sem var alveg frábært og alveg sérstaklega fyrir þá sem ekki komust á mótsstað. Við JR ingar áttum mjög góðan dag og unnum við til níu gullverðlauna og auk þess fjögur silfur og fjögur bronsverðlaun. JR vil óska keppendum til hamingju með árangurinn og þjálfurunum fyrir frábært starf sem þeir hafa innt af hendi. Einnig viljum við þakka foreldrum sem fóru með í þessa ferð fyrir þeirra aðstoð og stuðning. Hér eru úrslitin.
Vormót JSÍ 2019 – Yngri flokkar
Vormót JSÍ í yngri flokkum verður haldið í KA heimilinu á Akureyri laugardaginn 16. mars. Þáttaka er mjög góð eða um 100 manns en keppt verður í U13, U15, U18 og U21 árs aldursflokkum. Vigtun er föstudsagskvöldið 15. mars í KA heimilinu frá 18-22. Keppni hefst á laugardagsmorgni um kl. 9:30 og mótslok áætluð um kl. 15. Keppendalistinn er hér og hægt verður að fylgjast með mótinu hér í beinni útsendingu. Keppendur úr JR og frá Selfossi fóru saman í rútu og er meðfylgjandi mynd tekin af hluta hópsins ásamt þjálfurum og aðstandendum rétt áður en lagt var af stað.
Ægir með brons á Baltic Sea Championship
Ægir Valsson keppti um helgina í Finnlandi á Baltic Sea Championship. Hann keppti í -90 kg flokknum og hafnaði í þriðja sæti. Hann mætti fyrst Safar Rahmani frá Finlandi og fór sú viðureign í gullskor en Ægir sem var mikið betri aðilinn í glímunni var samt wazaari undir þegar 3 sek eru eftir en hannn jafnar á síðustu sekúndu. Báðir eru komnir með 2 shido og þegar Ægir nær taki á Finnanum fer hann með hausinn undir hendina á Ægi sem er þá skyndilega kominn með gripin sömumegin og í stað þess að gefa Finnanum sitt þriðja shido fyrir þetta þá fær Ægir sitt þriðja shido og þar með var möguleiki á gullli úr sögunni. Ægir mætir næst Kevin Nestor frá Svíþjóð og vinnur hann eftir skamma viðureign á ippon. Í keppninni um bronsið mætir hann Markus Lambacka frá Finnlandi og vinnur hann einnig örugglega eftir stutta viðureign. Hér eru úrslitin.
Egill og Sveinbjörn duttu út í Marrakech
Sveinbjörn Iura og Egill Blöndal komust því miður ekki áfram á
Marrakech Grand Prix um helgina. Þeir töpuðu báðir sínum viðureignum á fastataki þegar lítið var eftir af glímutímanum. Hér má sjá viðureign Sveinbjörns í 81 kg flokknum gegn Vedat Albayrak frá Tyrklandi sem endaði í öðru sæti og hér er viðureign Egils í -90 kg flokknum en hann mætti Faruch Bulekulov frá Kyrgyzstan.
Ægir Valsson keppir í Finnlandi á morgun
Ægir Valsson fór í morgun til Finnlands og mun keppa á Baltic Sea Championship á morgun, laugardaginn 9. mars. Baltic Sea Championship er keppni fyrir seniora, U18 og U21 árs og eru keppendur alls um 300 manns. Keppni seniora hefst um kl. 16 á morgun eða strax að lokinni keppni yngri flokka og ætti Ægir því að keppa um það leyti en hann keppir í -90 kg flokknum. Keppt er á þremur völlum og hægt að fylgjast með í beinni útsendingu en Ægir keppir á velli 1. og hér munu úrslitin birtast.