Páskamót JR 2026

Páskamót JR og Góu verður haldið laugardaginn 11. apríl og nú í tuttugusta og fyrsta skiptið og er mótið opið öllum klúbbum eins og venjulega. Skráning í skráningarkerfi JSÍ og er skráningarfrestur til miðnættis þriðjudagsins 7. apríl og sjá klúbbarnir um að skrá þátttakendur ekki foreldrar. Þar sem þátttaka er alla jafna mikil þá ætlum við að skipta mótinu í þrjá aldursflokka og klára hvern flokk fyrir sig og geta þá þeir keppendur og aðstandendur haldið heim. Fyrst verður keppt í aldursflokkum 7-8 ára (U8 og U9) f.ár 2018-2019. Vigtun á keppnisdegi frá kl. 11:00-11:30 og keppnin frá 12-13:30. Næst verður keppt í aldursflokkum 9-10 ára (U10 og U11) f.ár 2016-2017. Vigtun á keppnisdegi frá kl. 12:30-13:00 og keppnin frá 13:30-15:00. Að lokum verður keppt í aldursflokkum 11-14 ára (U13 og U15) f.ár 2012-2015. Vigtun á keppnisdegi frá kl. 14:00-14:30 og keppnin frá 15:00-16:30. Ef breytingar verða á dagskránni þá verða þær birtar hér að loknum skráningarfresti. Sama dag verður Páskamót JR fyrir börn 5-6 ára haldið á æfingatíma þeirra frá 10-11 og er það eingöngu innanfélagsmót.  Myndin hér að ofan er frá Páskamótinu 2025 en hér má sjá úrslitin 2025 og video klippu.