Páskamót JR og Góu verður haldið laugardaginn 26. apríl og nú í tuttugusta skiptið og er mótið opið öllum klúbbum eins og venjulega. Skráning í skráningarkerfi JSÍ og er skráningarfrestur til miðnættis þriðjudagsins 22. apríl og sjá klúbbarnir um að skrá þátttakendur ekki foreldrar. Keppt verður í aldursflokkum 7-10 ára frá kl. 12-14 (vigtun frá 10:30-11:00) og 11-14 ára frá 14-16 (vigtun frá 13-13:30). Ef breytingar verða á dagskránni þá verða þær birtar hér að loknum skráningarfresti. Sama dag verður Páskamót JR fyrir börn 5-6 ára haldið á æfingatíma þeirra frá 10-11 og er það eingöngu innanfélagsmót. Myndin hér að ofan er frá Páskamótinu 2024 en hér má sjá úrslitin 2024 og video klippu.


