Norðurlandameistaramótið 2026

Norðurlandameistaramótið 2026 verður haldið í Finnlandi um næstu helgi. Þangað fer fjölmennur hópur keppenda frá Íslandi eða um tuttugu og tveir auk þjálfara og aðstoðarmanna. Frá JR fara sextán keppendur tólf karlar og fjórar konur og keppa þau ýmist í cadett, juniora og eða seniora flokkum. Keppt verður á laugardag og sunnudag og er hægt að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu.